Skæð hitabylgja herjar á austurströnd Bandaríkjanna og yfirvöld hvetja fólk til þess að gera ráðstafanir. Bandaríkjamenn eru að búa sig undir 250 ára afmæli á laugardaginn, en þá er þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna.
Hitabylgja herjar á austurströnd Bandaríkjanna í sömu mund og fólk býr sig undir 250 ára afmæli laugardaginn 4. júlí. Hiti gæti farið langleiðina upp í 40 stig. Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, hvatti fólk til að gera ráðstafanir vegna hitans.
„Það mikilvægasta sem þú getur gert í þessum hita er að vera inni í loftkælingu. Ef þú getur sleppt því að vera utandyra á heitustu tímum dagsins, endilega gerðu það. Gerðu ráðstafanir með vinnu og umsjón barna og finndu út hvert þú getur farið til þess að kæla þig niður.“
Einnig eru borgaryfirvöld hvött til þess að fjölga stöðvum þar sem fólk getur kælt sig, stytta skrúðgöngur og hafa neyðaráætlanir til reiðu.
Sérlega slæm tímasetning
Tímasetningin er sérlega slæm, auk þjóðhátíðardags Bandaríkjanna á laugardag þá er þjóðin einn þriggja gestgjafa heimsmeistarmótsins í knattspyrnu karla.
Um og yfir 160 milljónir íbúa á svæðum þar sem hætta er meiriháttar eða mikil vegna hita, samkvæmt veðurstofu Bandaríkjanna. Þá er mikill raki í sumum borgum sem gerir illt verra og heldur hitastiginu háu.
Búið er að setja upp sérstakar kælistöðvar í nokkrum borgum, meðal annars Boston, New York og Washington. Búist er við að hitamet falli í dag og á morgun í þó nokkrum borgum Bandaríkjanna.