Því var ákaft fagnað þegar Hernán Alberto Gil Flores var bjargað úr húsarústum eftir jarðskjálftana í Venesúela í dag. Hundruð björgunarliða frá sjö löndum unnu að björguninni.
Hernán Alberto Gil Flores, 43 ára öryggisvörður, var í vinnunni þegar stóru skjálftarnir riðu yfir á miðvikudag í síðustu viku.
Björgunarsveitir höfðu náð sambandi við hann og fært honum vatn. Björgunin var flókin og tók nokkra sólarhringa.
Í morgun komust björgunarliðar í um metra fjarlægð frá honum og eftir hádegi náðu þeir honum undan rústunum. Hann var fluttur umsvifalaust á sjúkrahús.
Nærri 2.300 hafa fundist látin og enn er tuga þúsunda saknað.