Tuttugu og þrír sóttu um stöðu bæjarstjóra Grindavíkur. Á lista yfir umsækjendur eru bæði fyrrverandi bæjar- og sveitarstjórar og fyrrverandi alþingismenn.
Birgir Þórarinsson, Magnús Stefánsson og Jóhann Friðrik Friðriksson eru meðal fyrrverandi alþingismanna á lista yfir umsækjendur. Þar eru líka Ásmundur Friðriksson og Gísli Rafn Ólafsson, sem sóttu einnig um starf bæjarstjóra Suðurnesjabæjar.
Aðrir sem sóttu um bæði störfin eru Pétur Georg Markan, fyrrverandi bæjarstjóri í Hveragerði, Einar Kristján Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóri Húnavatnshrepps og Skaftárhrepps, og Ólafur Þór Ólafsson, fyrrverandi sveitarstjóri Reykhólahrepps.
Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri Reykhólahrepps, er einnig á lista yfir umsækjendur um starf bæjarstjóra Grindavíkur.
Fjórir af 23 umsækjendum drógu umsókn sína til baka, en hér er endanlegur listi yfir umsækjendur:
- Angantýr Einarsson, fyrrverandi skrifstofustjóri
- Aron Heiðar Steinsson, deildarstjóri
- Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi alþingismaður
- Birgir Þórarinsson, sjálfstætt starfandi
- Dagbjartur Willardsson, fasteignasali
- Einar Kristján Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóri
- Enok Holm Fanndal, bílasali
- Eyjólfur Vilberg Gunnarsson, fjármála- og rekstrarstjóri
- Gísli Rafn Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri
- Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir, stjórnenda- og leiðtogaþjálfi
- Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, framkvæmdastjóri
- Jóhann Friðrik Friðriksson. ráðgjafi
- Jón Ingi Hákonarson, ráðgjafi
- Magnús Stefánsson, fyrrverandi bæjarstjóri
- Maríanna Hugrún Helgadóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri
- Ólafur Þór Ólafsson, fyrrverandi sveitarstjóri
- Pétur Georg Markan, fyrrverandi bæjarstjóri
- Sigurður Sigurðsson, fyrrverandi rekstrarstjóri
- Sverrir Kári Karlsson, ráðgjafi