Kanadísk stjórnvöld vinna að frumvarpi sem myndi veita löggæsluyfirvöldum aukin völd yfir persónuupplýsingum kanadískra borgara. Ákvæði í frumvarpinu myndu skylda fyrirtæki sem veita rafræna þjónustu til að safna fleiri lýsigögnum um viðskiptavini sína.
Þá yrði þröskuldurinn sem löggæsluyfirvöld þurfa að yfirstíga til að fá aðgang að slíkum upplýsingum lækkaður. Í vissum tilfellum gætu opinberir embættismenn jafnvel krafist stafrænna upplýsinga án þess að þurfa sérstaka tilskipun.
Kanadísk stjórnvöld segja að löggæsluaðilar þurfi greiðari aðgang að stafrænum upplýsingum í rauntíma til að geta barist gegn glæpum. Sem dæmi nefna þau hrinu fjárkúgunarmála þar sem samskipti fara fram í gegnum Whatsapp, dulkóðaða samskiptaþjónustu Meta.
Bakdyr haldast ekki endilega lokaðar
Gagnrýnendur benda þó á að þegar búnar eru til nýjar leiðir til að sækja persónuupplýsingar úr dulkóðuðum kerfum sé búið að útbúa bakdyr sem óprúttnir aðilar gætu á endanum fundið. Áhættan á slíku hafi aukist til muna með tilkomu gervigreindar.
Frumvarpið hefur verið harðlega gagnrýnt á alþjóðavettvangi á þeim grundvelli að það gangi of nærri friðhelgi einkalífsins og netöryggi. Í síðustu viku sendu meira en 20 samtök, þar á meðal Amnesty International, opið bréf til kanadískra stjórnvalda. Þar var frumvarpið sagt vera „yfirvofandi hörmung“ og biðlað var til forsætisráðherra landsins, Marks Carney, að grípa inn í áður en frumvarpið gæti orðið að lögum.
Frumvarpið hefur verið samþykkt af neðri deild þingsins og öldungadeild Kanada kom með nokkrar breytingartillögur í gær sem miðuðu að því að tryggja að tæknifyrirtæki gætu viðhaldið vörnum gegn netárásum.