Í dagbók kemur einnig fram að í Kópavogi/Breiðholti hafi ökumaður verið stöðvaður af lögreglu við hraðaeftirlit. Sá reyndist vera að aka á 141 km hraða á akbraut þar sem leyfilegur hámarkshraði er 80 km hraði. Í dagbók segir að fljótt hafi vaknað grunur um að ökumaður bifreiðarinnar væri undir áhrifum vímuefna, sem reyndist á rökum reist. Ökumaður var því handtekinn og færður á lögreglustöð í hefðbundið ferli. Laus að því loknu samkvæmt dagbók.
Tveir gistu í fangageymslum lögreglunnar í morgun samkvæmt dagbók og voru 57 mál bókuð í kerfi lögreglunnar frá klukkan 17 til fimm í morgun.