13 manns eru látnir eftir námuslys í Indónesíu. Sagt var frá því í gær að 26 manns væru innlyksa í námunni, sem er ólögleg gullnáma á eyjunni Jövu, en nú hefur fengist staðfest að helmingur þeirra er látinn.
Hinna 13 mannanna er enn þá saknað en 11 námuverkamenn náðu að yfirgefa svæðið áður en vatnið flæddi inn. Úrhellisrigning olli því að nálæg á flæddi yfir bakka sína á mánudag og ofan í námuna. Yfirvöld fengu þó ekki tilkynningu um atvikið fyrr en á þriðjudag.
Lögreglan á Vestur-Jövu segir að aðgerðir hafi gengið hægt vegna mikils rigningarveðurs og þess hve aðgengi að námunni er þröngt. Hún er um hundrað metra djúp, illa lýst og undirlagið er afar sleipt svo erfitt er að athafna sig.
Slys í námum eru algeng í Indónesíu, en landið er einstaklega ríkt af ýmsum málmum. Sérstaklega er algengt að vandamál komi upp í tengslum við ólöglegar námur þar sem öryggisreglur eru slakar eða jafnvel hunsaðar.