Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason eiginmaður hennar senda samúðarkveðjur til fjölskyldna og ástvina sjómannanna þriggja sem létust í sjóslysinu í gær:„Við Björn sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldna og ástvina sjómannanna þriggja sem létust í sjóslysinu fyrir austan.Þakklæti fyrir þau mannslíf sem tekist hefur að bjarga blandast djúpri sorg yfir þeim sem við misstum. Hugur okkar er hjá öllum sem nú eiga um sárt að binda.
Forseti Íslands: „Á sorgarstund sem þessari stöndum við saman sem þjóð“