Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur staðfest þá niðurstöðu Herjólfs o.hf. að neita að afhenda manni fundargerð stjórnar félagsins á pappír, með vísan til þess að hún væri aðgengileg á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar.Krafðist maðurinn þess í kærunni að félaginu yrði gert að afhenda honum fundargerðina úprentaða eða láta honum í té aðstöðu til að prenta fundargerðina út sjálfur.Tjáði Herjólfur o.hf. nefndinni að talið hafi verið nægja að benda manninum á þá vefslóð þar sem nálgast mætti fundargerðir stjórnar félagsins.
Fór í hart til að fá fundargerð sem aðgengileg var á netinu afhenta á pappír