Á vef Veðurstofunnar segir að eftir því sem líður á taka vindaviðvaranir gildi ein af annari, þær fyrstu á miðhálendi og á Austurlandi að Glettingi undir hádegi, en þær síðustu á Breiðafirði og Vestfjörðum í kvöld. Vindur verður yfirleitt á bilinu 15-23 metrar á sekúndu á láglendi, en heldur hvassara á stöku stað austanlands.
Á Suðurlandi tekur gul veðurviðvörun gildi klukkan 15:00 og er spáð til miðnættis þegar þetta er skrifað. Á Faxaflóa tekur viðvörun gildi 19:00 til 02:00 í nótt, á Breiðafirði frá 21:00 til 02:00, á Vestfjörðum 22:00 til 06:00 í fyrramálið, á Ströndum og Norðurlandi vestra frá 18:00 til 11:00 á morgun, Norðurlandi eystra frá 15:00 síðdegis í dag til 09:00 í fyrramálið föstudag. Veðurviðvaranir sem eru í gildi á Austurlandi að Glettingi eru í gildi til 08:00 í fyrramálið og á Austfjörðum til 22:00 í kvöld.
Veðrinu fylgir rok, 30 metrar á sekúndu víðast hvar. Vindhviður við fjöll gætu náð staðbundið yfir 35 metrum á sekúndu. Hvassir suðaustan vindstrengir á suðvestanverðu landinu síðdegis, til dæmis undir Eyjafjöllum, Esju og Hafnarfjalli. Varasamar aðstæður geta skapast fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi. Víða á fjallvegum eru hálka líkt og á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku.
Veðurviðvaranir Veðurstofunnar má sjá hér.
Aðfaranótt föstudags verður lægðamiðjan að fikra sig upp eftir vesturströnd landsins áður en hún tekur stefnuna í vestur og um hádegi á föstudag ætti vindur að vera búinn að ná sér niður í víðast hvar, en allhvasst eða hvasst verður á Vestfjörðum eitthvað fram eftir degi. Bjart með köflum verður norðanlands eftir hádegi, en annars kólnar síðdegis með skúrum eða slydduéljum.
Meðan á þessu lægðarbrasi stendur verður fremur hlýtt yfir landinu og geta hitatölur víða náð tveggja stafa tölu. Um helgina kólnar aftur og er útlit fyrir snjókomu eða slyddu á laugardag, en líklega rigningu við ströndina á sunnan- og austanverðu landinu. Síðdegis tekur að hvessa austanlands vegna smálægðar sem er á ferðalagi norðvestur yfir landið. Líkur eru á að hún fari hratt yfir á sinni leið, en þær geta þó verið ólíkindatól þessar smálægðir og óvissan í spám því nokkur hvað laugardaginn varðar.
Veðrið á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Suðlæg átt 13-20 m/s og skúrir, 8-15 eftir hádegi og kólnar með éljum, en allhvasst eða hvasst og rigning á Vestfjörðum fram yfir hádegi. Bjart með köflum og úrkomulítið á Norður- og Norðausturlandi. Hiti 2 til 8 stig, en kólnandi síðdegis, einkum inn til landsins.
Á laugardag:
Austlæg eða breytileg átt 5-13 og víða slydda eða snjókoma, en hvessir austanlands eftir hádegi og hlýnar með rigningu eða slyddu. Úrkomuminna norðanlands. Hiti um eða yfir frostmarki, en að 8 stigum austantil síðdegis.
Á sunnudag:
Suðlæg eða breytileg átt 5-13 og víða snjókoma eða slydda, en hægari og úrkomuminna síðdegis. Kólnar í veðri.
Á mánudag:
Breytileg átt, bjart með köflum og dálítil él með suður og vesturströndinni, en þurrt á Norður- og Austurlandi. Fremur svalt í veðri.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir norðaustlæga eða breytilega átt og rigningu, slyddu eða snjókomu með köflum.