Öflugt íþróttastarf fyrir fatlað fólk hjá var þegar til staðar hjá Íþróttafélaginu Ívari á Ísafirði þegar Vestri fór af stað með körfuboltaæfingarnar fyrir tveimur árum. Yngri iðkendur vantaði þó fleiri tækifæri og þegar auglýstur var styrkur úr Hvatasjóði til að efla íþróttir fyrir fötluð börn var ákveðið að sækja um. Þegar styrkurinn var í höfn var félaginu ekkert að vanbúnaði. Þjálfarar Vestra mættu á æfingu hjá Haukum og fengu þar handleiðslu við að koma verkefninu af stað.
„Við ákváðum að ofhugsa þetta ekki neitt heldur henda okkur út í þetta. Við fengum góða handleiðslu frá Haukum og frá Báru Hálfdánardóttur og þetta gekk allt vel,“ segir Heiðrún.
Um sjö til tíu iðkendur eru í hópnum og er starfið sniðið að þörfum hvers og eins. Fyrst voru æfingarnar seinni part dags en þá var farið að gæta þreytu hjá krökkunum eftir daginn svo æfingarnar voru færðar á laugardaga. Hópurinn fær að vera einn á æfingu í íþróttahúsinu sem tryggir að áreiti er haldið í lágmarki sem er mikilvægt fyrir hópinn. Sumir iðkendur mæta á æfingar með foreldrum sínum en hjá öðrum er æfingin hluti af liðveislunni þeirra.
Heiðrún segir mikla gleði á æfingunum og ekki síður í foreldrahópnum. „Við sjáum þakklæti og gleði hjá foreldrum að þetta sé í boði og krakkarnir skemmta sér svo vel á æfingum. Þetta gengur mjög vel og okkur í Vestra finnst þetta ekki vera flókið,“ segir Heiðrún.
„Auðvitað eru áskoranir í þessu eins og í allri annarri þjálfun, það reynir alltaf á þjálfara og kannski sérstaklega á þá sem eru að þjálfa yngri iðkendur.
En þjálfun fatlaðra barna snýst um það sama og hjá öllum öðrum iðkendum, þú ert að fá ólíka einstaklinga til að gera sitt besta.
En til að geta mætt ólíkum einstaklingum erum við með fleiri þjálfara á þessum æfingum en í öðrum flokkum.“
Körfubolti höfðar til margra í hópnum en Heiðrún myndi vilja að börnin fyrir vestan fái meira val. Hún vonar að fleiri íþróttagreinar bætist við og að æfingar fyrir fötluð börn verði með tímanum fastur liður í íþróttastarfinu á svæðinu.
Starfið er þegar inni í framtíðaráætlunum körfuknattleiksdeildar Vestra. Heiðrún segir deildina vera að skoða hvernig hægt sé að stækka það og vonast til að með tímanum verði hægt að bjóða unglingum upp á séræfingar. Hana langar einnig að krakkarnir fái að upplifa það sem fylgir því að mæta með sínu liði á mót, vera í búning og taka þátt í keppni.
Inngilding á líka við þegar kemur að íþróttastarfi
Heiðrún segir átakið Allir með hafa opnað augu margra. Það hafi þó komið henni á óvart hversu fá félög hafi bæst við á þeim tíma sem Vestri hefur boðið upp á æfingarnar. Hún hvetur fleiri félög til að láta reyna á starfið.
„Ef við viljum tala um inngildingu í íslensku samfélagi þarf íþróttahreyfingin að fylgja með, og ef við viljum láta taka okkur alvarlega sem inngildandi íþróttafélög þá sinnum við öllum, ekki bara sumum. Á okkar svæði er sem dæmi hátt hlutfall barna og unglinga með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn sem við þurfum að ná betur til.“
„Við megum ekki missa okkur í allt of mikla afreksmiðun þó hún sé líka hluti af starfinu okkar. Íþróttastarf barna og unglinga snýst í grunninn um að fá þau til taka þátt í skipulögðu starfi, hreyfa sig og verða betri í sinni íþróttagrein og síðan að þjálfast í félagslegum samskiptum,“ segir Heiðrún.
„Það þurfa ekki allir að stefna að því að verða heimsmeistarar, við viljum hafa alla með. Slagorðið Allir með segir því í raun allt sem segja þarf.“
Allir með vinnur að því að fjölga tækifærum barna með fötlun til að stunda íþróttir í sínu nærumhverfi. Starfsfólk Allir með veitir íþróttafélögum og þjálfurum fræðslu og fjárstuðning til að stíga skrefið og bjóða upp á starf fyrir börn með fötlun. Íþróttir eru fyrir öll börn. Meira um verkefnið á allirmed.is