Bandaríska samfélagsmiðlasíðan Libs of TikTok beindi sjónum að Íslandi í gærkvöldi og gerði grín að orðalagi stjórnvalda um valdaójafnvægi kynjanna og sýndi konur í áberandi embættum landsins. Færslan fór víða og Íslendingar tóku þátt í umræðunni.
Libs of TikTok, sem er með um 4,7 milljónir fylgjenda á X, segir í færslunni að á Íslandi sé enn talað um „valdaójafnvægi“ sem bitni á konum. Síðan bætir hún við að konur gegni sjö af níu æðstu stöðum landsins og leiði þrjá stóra stjórnmálaflokka.
Iceland claims it still has „power imbalances“ that negatively affect women.
7/9 of Iceland’s top positions are held by women. The leaders of its three major political parties are women.
— Libs of TikTok (@libsoftiktok) November 24, 2026
Með færslunni fylgir skjáskot af jafnréttissíðu stjórnvalda og samsett mynd af níu konum í áhrifastöðum. Færslan hafði fengið um 241 þúsund áhorf, um 4.200 læk og rúmlega 300 svör þegar mælt var í morgun.
Hvað stendur á vefnum?
Á enskri síðu stjórnvalda er fjallað um góða stöðu Íslands á jafnréttisvísitölu Alþjóðaefnahagsráðsins. Þar segir svo að enn sé til staðar ójöfnuður og „valdaójafnvægi“ sem vísitalan mæli ekki – á ensku „inequalities and power imbalances that are not assessed in the Index“.
Í þeirri setningu stendur ekki að valdaójafnvægið bitni á konum. Það er orðalag Libs of TikTok. Á síðunni er jafnframt fjallað um kynjaskiptingu vinnumarkaðarins og launamun.
Konur gegna sannarlega mörgum þeim stöðum sem myndin sýnir, þar á meðal embætti forseta Íslands, forsætisráðherra og forseta Alþingis.
En talan sjö af níu kemur ekki með skýringum á því hvaða níu stöður séu taldar. Á myndinni eru níu konur, meðal annars borgarstjóri Reykjavíkur og þrír ráðherrar sem eru líka flokksformenn.
Konur leiða ríkisstjórnarflokkana þrjá: Kristrún Frostadóttir Samfylkinguna, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Viðreisn og Inga Sæland Flokk fólksins. Eftir þingstyrk eru Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin stærst, en Viðreisn og Flokkur fólksins jöfn þar á eftir. Formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, er einnig kona.
Feðraveldið og geldingarnir
Arnar Knútsson kvikmyndaframleiðandi lét eitt orð duga þegar hann deildi færslunni: „Feðraveldið“.
„Feðraveldið“
— Arnar Knútsson (@addiknutsson) November 24, 2026
Ryan Kennedy tók aðra stefnu og hélt því fram að konur myndu kvarta undan kúgun þar til engir karlar réðu neinu.
Women will claim to be oppressed until there are literally no men in charge of anything.
— Ryan Kennedy (@RyanBtheSheezy) November 24, 2026
Notandinn Benzene spurði hvað jafnræði ætti eiginlega að þýða í augum þeirra sem töluðu enn um valdaójafnvægi.
Women hold 7 of Iceland’s 9 top positions and it’s still a „power imbalance.“ That’s the tell. Feminism was never about equality, it’s a grievance with no finish line. Honest question, what would equal even look like to them?
— Benzene (@PaperBenzene) November 24, 2026
Kanadíski prófessorinn og rithöfundurinn Gad Saad tók undir með kaldhæðni. Hann kallaði Ísland „land geldinganna“ – „Land of the Eunuchs“ – og sagði það hneyksli að körlum væri yfirhöfuð hleypt í stjórnmál.
Absolutely disgusting that Iceland, Land of the Eunuchs, even allows men to serve as politicians. #TheFutureIsFemale
@gunnlaj
— Gad Saad (@GadSaad) November 24, 2026