Björn Berg Gunnarsson, sem svarar spurningum lesenda aðra hverja viku, veitir ekki aðeins fjármálaráð heldur á hann til að draga fram í dagsljósið það sem leynist í myrkustu skúmaskotum mannssálarinnar.
Í svari við fyrrnefndri spurningu ráðlagði hann konunni að láta ekki eyðslu annarra villa sér sýn. „Ég hugsa að okkur hætti til að halda að íburður sé merki um velmegun,“ segir hann. „Það þarf hann ekki að vera.“
Orð hans eru ekki aðeins víti til varnaðar heldur afhjúpa þau eina stærstu blekkingu samtímans.
Kaupum okkur til metorða
Á morgun munda margir kreditkortið í tilefni af svörtum föstudegi. Í Kringlunni kaupum við okkur þó ekki aðeins varning heldur reynum við einnig að kaupa okkur til metorða.
Föt, símar, handtöskur og húsbúnaður hafa ekki aðeins praktískan tilgang heldur einnig félagslegan: Með réttu eignunum hefjum við okkur yfir aðra.
En eins og Björn Berg benti lesanda Vísis á er ekki allt sem sýnist.
Óvænt vörn í dómsal
Í fangelsi í Miami í Bandaríkjunum húka bræðurnir Andrew og Tristan Tate.
Tate bræður voru eitt sinn helstu boðberar hins svo kallaða „karlahvels“ internetsins (e. manosphere). Nú berjast þeir hins vegar gegn framsali til Bretlands þar sem þeirra bíða ákærur fyrir nauðgun, mansal og líkamsárás svo fátt eitt sé nefnt.
Eftir helgi er fyrirhugað að bræðurnir komi fyrir dómara, sem fjalla mun um kröfu þeirra um lausn úr varðhaldi gegn tryggingu.
Dómari hafði áður neitað þeim um slíka lausn á þeim forsendum að þeir væru svo ríkir að auðvelt væri fyrir þá að flýja land.
Bræðurnir grípa nú til heldur óvæntrar varnar.
Tóku lúxusbílana á leigu
Tate bræður urðu frægir fyrir að boða á samfélagsmiðlum róttæka karlmennsku umkringdir lúxusbílum, Rolex-úrum og gullstöngum.
Það sem áður var aðalsmerki þeirra sverja þeir nú af sér.
Er þeir biðla til dómarans kveða bræðurnir auðinn, sem þeir flíkuðu á internetinu, hafa verið blekkingu. Þeir segjast hafa tekið lúxusbílana á leigu og að þeim hafi verið greitt fyrir að auglýsa snekkju sem þeir létust eiga. Vegabréf frá hinum ýmsu löndum sem þeir flögguðu segja þeir hafa verið föndruð úr pappaspjöldum.
Lögfræðingar bræðranna segja að um markaðsbrellu hafi verið að ræða. Þeir hafi selt námskeið á netinu um það hvernig ætti að verða ríkur og það hafi verið „þeim í hag að láta líta út fyrir á samfélagsmiðlum að þeir væru vellauðugir“.
Nóg að virðast flottur
Lesandi Vísis furðaði sig á jafningjum sem eyddu peningum í dýran neysluvarning. „Af hverju gerir fólk þetta?“ spurði hún.
Svarið er einfalt: Keppni nútímamannsins um samfélagsstöðu er ekki keppni um innihald heldur umbúðir. Samtíminn er eins og fallegur jólapappír vafinn utan um tóman kassa. Til að komast til metorða er ekki endilega nauðsynlegt að vera flottur heldur er nóg að virðast flottur.
Blaðamaður breska dagblaðsins The Times heimsótti Andrew Tate árið 2022. Hann klóraði sér í höfðinu yfir því sem fyrir augu bar.
Á yfirborðinu blasti við ríkidæmi; Tate sat og reykti dýra vindla í viðarklæddu herbergi við hliðina á glerskáp sem var fullur af úrum, skartgripum, gulli og silfri; fyrir utan bygginguna stóðu lúxusbifreiðar í röðum.
Íburðurinn var hins vegar til sýnis í gömlu iðnaðarhúsnæði í útjaðri Búkarest sem líktist helst óhrjálegu sláturhúsi.
Að undanskildum bílunum og verðmætunum í glerskápnum komst blaðamaðurinn að þeirri niðurstöðu að sláturhöll Tate væri langtum minna virði en hóflegt heimili blaðamannsins sjálfs í London.
Hið hola hjarta samtímans
Er nágranni þinn með Audi í innkeyrslunni? Glittir í Eggið inn um stofugluggann?
Velmegun annarra er oft ekki annað en blekking.
Hið hola hjarta samtímans slær ört á svörtum föstudegi. Áður en þú dregur fram veskið í keppni við nágrannann um stöðutákn skaltu hugsa þig tvisvar um.
Því, eins og Tate bræður vita og Björn Berg benti lesanda Vísis á: „Það kemur nefnilega að skuldadögum hjá okkur öllum ...“