Kostnaður við að bæta við einni björgunarþyrlu við flugflota Landhelgisgæslunnar og staðsetja hana á Akureyri kostar um 1,1 milljarð á ári. 1 til 3 ár tekur að útvega nýja þyrlu.
Samráðsvettvangur trúfélaga og lífsskoðunarfélaga á Íslandi býður til sameiginlegrar kyrrðarstundar í Fossvogskapellu í samstarfi við Kirkjugarða Reykjavíkur.
Fossvogskapella verður opin frá klukkan 17 og fram á kvöld. Þar gefst fólki kostur á að eiga kyrrðarstund, biðjast fyrir, minnast þeirra sem fórust eða einfaldlega eiga samveru með fólki í sorg og óvissu í kjölfar atburðanna.
„Þetta er sameiginlegt boð til allra, óháð trú eða lífsskoðun. Engin krafa er um þátttöku í trúarlegum athöfnum. Fólk getur komið og dvalið eins lengi og það kýs,“ segir í tilkynningu.
Velkomin á fréttavaktina. Þrír fórust og fjórtán björguðust í sjóslysi þegar Jökull ÞH 299 sökk 60 sjómílur austur af landinu á miðvikudag.
Tveir þeirra sem fórust hafa verið nafngreindir. Það voru Eggert Ellertsson og Aðalsteinn Steinþórsson. Sá þriðji hefur ekki verið nafngreindur, en pólska sendiráðið hefur staðfest að hann var Pólverji.
Aðstandendur minnast Eggerts og Aðalsteins á Facebook. Klukkan 17 verður opið hús í Fossvogskapellu í Reykjavík.