Vonir standa til að megnið af tölvukerfum Reykjavíkurborgar, sem urðu fyrir netárás í vikunni, verði komin upp í dag. Forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis segir minni líkur en meiri á að veikleiki í skýjaþjónustunni Microsoft Azure hafi verið brotalömin. Ekki liggur fyrir hvort persónugögn séu undir árásinni.
Lagskipt verkefni að bregðast við svona netárás
Netárás var gerð á hluta tölvukerfa Reykjavíkurborgar á miðvikudag. Gripið var til öryggisráðstafana þegar árásin uppgötvaðist. Meðal annars var ákveðið að taka fjölda rafrænna þjónustukerfa úr sambandi tímabundið.
Samkvæmt heimildum fréttastofu var brotist inn í gegnum Microsoft Azure. Tölvuþrjótar komust yfir lykilorð og inn í gagnagrunn hjá Reykjavíkurborg.
„Það að bregðast við svona árás er lagskipt verkefni,“ segir Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis.
Fyrst hafi verið reynt að temja útbreiðsluna. „Við fórum í harkalegar aðgerðir fyrst og tókum niður kerfi.“
Hann segir kerfin ekki hafa verið tekin niður af því að þau hafi verið skemmd heldur af öryggisástæðum. Skorið hafi verið á línur milli skýjaumhverfa og kerfa hér á landi þannig að tölvuþrjótarnir nái ekki fótfestu í kerfinu. Gervigreind var notuð í árásinni.
„Svo fer af stað vinna við að hreinsa þessi kerfi. Það er það sem er að gerast núna.“
Í því felist meðal annars að breyta um lykilorð og aðgangslykla „þannig að árásaraðilinn hafi ekki tök í framhaldinu. Árásaraðilar reyna að búa til bakdyr til að komast aftur inn í kerfin.“
Anton segir mikla gagnagreiningu í gangi og hafa verið frá því að árásin uppgötvaðist. Það upplýsi um hreyfingu tölvuþrjótanna. „Þeir eru enn að reyna að komast inn og við fylgjumst áfram með því.“
Búið er að tilkynna málið bæði til netöryggissveitarinnar CERT-IS og til Persónuverndar.
„Það liggur ekki fyrir enn hvort eða hvar persónugögn tengjast þessu. Það er hluti af því sem er verið að vinna í.“
Anton á von á því að það komi í ljós á allra næstu dögum.
Hann segir minni líkur en meiri, á þessari stundu, á að veikleiki í skýjaþjónustunni Microsoft Azure, hafi verið brotalömin. Ekki sé alltaf bein tenging á milli veikleika í Azure og netárása.
„Við erum búin að kortleggja þannig séð í hvaða kerfi og hvar þessar hreyfingar voru en það er er viðameira að kortleggja í hvaða gögn árásaraðilar komust í. Ég vona að megnið af kerfunum verði komin upp í dag og að þjónustan byrji að fara í gang aftur í dag.“