You Can See Everything er leikstýrt af þeim Nathan Fielder og Lance Oppenheim en heimildarmyndin er framleidd af A24. David Bolen sér um kvikmyndatöku, Adam Locke-Norton um klippingu og kvikmyndatónlistin er í höndum Ara Balouzian.
Áður en Elizabeth Holmes, fjársvikamaður og stofnandi Theranos, fer í fangelsi, til að afplána ellefu ára dóm, ákveður hún ásamt eiginmanni sínum, Billy Evans, að bjóða tökuliði að dvelja á heimili þeirra í rúman mánuð til að gefa afdráttarlausa innsýn inn í líf þeirra. Við tekur óþægileg, persónuleg og kostuleg viðureign milli leikstjórans Nathans Fielder og hjónanna. Fielder er vanur að ögra fólki með óhefðbundinni aðferðarfræði en fær að smakka á eigin meðali hjá hjónunum.
You Can See Everything var frumsýnd hérlendis 19. nóvember síðastliðinn og er sýnd í Smárabíói, Sambíóunum og Laugarásbíói.
Leikstjóri, svikahrappur og grínisti
Áður en fólk skellir sér á You Can See Everything, sem hefur vakið mikið umtal og er þegar orðin ein af aðsóknarmestu heimildarmyndum sögunnar, er gott að vita upp úr hvaða jarðvegi hún sprettur. Lykilpersónurnar þrjár í þessu verki eru Lance Oppenheim, Elizabeth Holmes og Nathan Fielder..
Oppenheim hefur áður leikstýrt heimildarmyndunum Some Kind of Heaven (2020) um risavaxinn dvalarheimilisbæ fyrir aldraða í Flórída og Spermworld (2024) um svartan markað sæðisgjafa. Árið í ár er hans stærsta á ferlinum. Auk You Can See Everything þá leikstýrði hann sinni fyrstu leiknu mynd, Primetime, sem fjallar um umdeilda fjölmiðlamanninn Chris Hansen en rétt eins og Nathan Fielder þá gerði Hansen í því að sviðsetja raunveruleikann í sjónvarpi.
Oppenheim býr yfir sterkum stíl, forðast hefðbundin heimildarmyndaviðtöl, fangar jafnan sömu senurnar úr mörgum sjónarhornum, rammar viðfangsefni sín vel inn og hefur sterka tilfinningu fyrir lýsingu og sjónrænum augnablikum. Oftar en ekki tæklar hann í myndum sínum myrkrið sem fólk felur undir sléttu og felldu yfirborði.
Elizabeth Holmes var á ákveðnum tímapunkti einn frægasti frumkvöðull í heimi. Líftæknifyrirtækið Theranos, sem hún stofnaði nítján ára gömul og leiddi með kærasta sínum Sunny Balwani, var ætlað að umbylta blóðrannsóknum með litlu tæki sem gæti framkvæmt ótalmargar rannsóknir á stökum blóðdropa. Á daginn kom að þau höfðu blekkt fjárfesta með ósönnum fullyrðingum um tækni sem virkaði ekki almennilega og þannig svikið út hundruði milljóna dala og aukið hróður fyrirtækisins.
Bæði Holmes og Balwani voru ákærð fyrir fjársvik og hlutu þau bæði áralanga fangelsisvist árið 2022. Fjallað hefur verið ítarlega um mál Holmes, fyrst í fjölmiðlum og síðan í hlaðvörpum, heimildarmyndum og sjónvarpsþáttunum The Dropout (2022) með Amöndu Seyfried í aðalhlutverki. Þrátt fyrir gnægð sönnunargagna um blekkingar og ósannsögli Holmes hefur hún staðfastlega haldið fram sakleysi sínu.
Sjá einnig: Stofnandi Theranos kemst ekki hjá fangelsisvist
Mikilvægasta hráefni kvikmyndarinnar er þó óumdeilanlega Nathan Fielder og má segja að myndin fjalli ekki síður um hann en Holmes. Eftir að hafa menntað sig í viðskiptafræði í Kanada byrjaði Fielder með innslagið „Nathan on Your Side“ í kanadíska grínþættinum This Hour Has 22 Minutes þar sem hann tók vandræðaleg viðtöl við fólk á árunum 2008 til 2009.
Upp úr þessu innslagi þróaði Fielder svo grínþættina Nathan For You (2013-17) sem hann skrifaði, leikstýrði og fór með aðalhlutverk í. Þættirnir fjölluðu um skáldaða og ýkta útgáfu af Fielder þar sem hann veitti litlum fyrirtækjum í vanda ráðgjöf sem var ýmist yfirgengilega fáránleg eða hreinlega slæm.
Fyrir utan absúrd og vandræðalegan húmorinn er eitt sterkasta einkenni þáttanna að áhorfandinn á oft erfitt með að greina hvað er ekta og hvað er leikið. Nathan tók þennan leik að raunveruleikanum á næsta stig með sjónvarpsþáttunum The Rehearsal (2022-25) sem gengu í tvær þáttaraðir á HBO.
Þar lék Nathan áfram skáldaða útgáfu af sjálfum sér og reyndi að hjálpa fólki að komast í gegnum erfiða lífsreynslu. Lausnin var að láta það æfa sig fyrir ákveðna atburði með hjálp risavaxinna raunsæislegra leikmynda og aukaleikara í líki alvöru persóna. Við erum stöðugt að leika ákveðin hlutverk í daglegu lífi og því ætti að vera að hægt að æfa sig fyrir þau eins og önnur hlutverk.
Nathan reynir í þáttunum að sjá fyrir allar mögulegar útkomur með því að endurskapa raunveruleikann og æfa hann nógu oft þar til óskaniðurstaða fæst. Raunveruleikinn verður ótrúlegur og eftirlíkingin raunveruleg. Nathan kannar sérstaklega hvernig fólk sviðsetur sjálft sig þegar það veit að einhver er að horfa, annað fólk eða myndavélin.
Gest ber að garði
You Can See Everything hefst á símtali Billy Evans þar sem hann segir frá því að verið sé að gera heimildarmynd um Holmes til að leiðrétta rangfærslur um hana og sýna hennar rétta andlit. Bragðið er dæmi um sjálfsvísandi eðli myndarinnar, það fyrsta af mörgum þar sem áhorfendur eru áminntir um að þeir séu að horfa á heimildarmynd, og sýnir jafnframt afstöðu þeirra hjóna til myndarinnar og stöðu Holmes.
Við tekur hröð kynning á Theranos-máli Holmes með samklippi af fréttum af glæpum hennar, samtali Holmes við dómara um yfirvofandi fangelsisvist sína og ýmsu öðru efni. Farið er á hundavaði en áhorfendum þó gert skiljanlegt að Holmes sveik fé út úr fjárfestum og er á leið í fangelsi. Hraðinn á klippingunni í takt við spennuþrungna taktfasta tónlist Balouzian kemur áhorfendum vel inn í söguna án þess að mata þá á upplýsingum.
Áhorfendur fylgjast með Holmes og Evans ganga á ströndinni, spjalla saman um næsta fyrirtæki sitt og sinna börnum sínum. Skyndilega birtist í bakgrunninum skuggamynd af manni sem horfir inn um stofugluggann. Sjónræn frásögnin er kómísk á sama tíma og það er ítrekað að fjölskyldan sé í mynd, það sé fylgst með þeim og að Nathan Fielder sé stöðugt nærri.
Upp frá þessu hefst glíma Nathans við Elizabeth og Billy. Ólíkt því sem mætti halda er hann ekki mættur til að þvinga fram sannleikann úr Holmes eða fá hana til að játa á sig glæpina sem hún vill ekki viðurkenna. Hann er uppteknari af sambandi Holmes við sannleikann, hvernig hún sér sjálfa sig og hvernig þau hjónin fúnkera saman í þeim heimi sem þau hafa skapað sér.
Kvikmyndataka David Bolen skýtur þröngar nærmyndir af fólkinu þar sem myndavélin ílengist á andlitum þeirra til að auka nándina og ýkja óþægindin. Hver svipur er hlaðinn spennu og hið ósagða ekki síður mikilvægt. Holmes á sinn þátt í að magna óþægindi áhorfenda með sínu barnslega uppgerða sakleysi og risastórum bláum augum sem virðast haldast opin mínútum saman án þess að hún blikki.
Maður trúir því varla að tökuliðið telji einungis sjö manns því kvikmyndatakan er svo vönduð, hvert skot listilega rammað inn og lýsingin til fyrirmyndar við krefjandi aðstæður. Burtséð frá umfjöllunarefninu er myndin ein sú best útlítandi sem maður hefur séð lengi. Klippingu Locke-Norton verður að hrósa sérstaklega, áhorfendum er haldið við efnið allan tímann og líður á köflum eins og þeir séu að horfa á spennumynd.
Skrattinn hittir ömmu sína
Nathan hefur í gegnum tíðina beitt flötum mónótónískum talanda, nýtt óþægilega nærveru sína og spurt undarlegra spurninga til að koma viðmælendum sínum úr jafnvægi. Holmes beitir sínum eigin brögðum, starir daðurslega í augun á Fielder og svarar undarlega. Hingað til hefur Nathan dregið fólk inn í falsheiminn sem hann hefur skapað en í þetta skiptið er hann gestur í heimi annarra.
Þegar spurningarnar hefjast kemur fljótt í ljós að Holmes er ekkert sérstaklega áreiðanleg eða sannfærandi. Hún hafnar því algjörlega að hafa logið að nokkrum manni um Theranos og gengur raunar svo langt að halda því fram að hún hafi aldrei á ævi sinni logið. Samt sem áður heldur hún ekki uppi neinum almennilegum vörnum eða skýrir mál sitt. Helsta vörn hennar er að tala um tilfinningar sínar eða þá sýna þær með gráti.
Fielder er enginn blaðamaður og hefði getað verið mun beinskeyttari í að afhjúpa Holmes í myndinni. Aðferðafræði hans er þó mun lúmskari og fer hann ýmsar leiðir að Holmes, spyr hana beint út í ákveðin atrið, forvitnast um loðið orðalagið sem hún notaði hjá Theranos og reynir að grafast fyrir um persónuleg sambönd hennar. Svörin eru öll nokkurn veginn á sömu leið, Holmes ýmist hafnar því að hafa gert nokkuð, segist hafa gert hlutina í góðri trú eða segist ekki vita svarið.
Eftir því sem líður nær fangelsisvist Holmes magnast vanlíðan hennar, hún grætur ítrekað og Nathan virðist litlu nær um Holmes sem persónu. Samt sem áður fær maður ákveðna mynd af heimilislífinu og hvaða hlið þau ákveða að sýna af sér. Billy er ekki síður forvitnilegur en Elizabeth, aggressívur, afskiptasamur og sjálfhverfur.
Húmorinn er aldrei langt undan og var mikið hlegið í salnum þegar ég fór á myndina. Nathan er einn og sér fyndinn en sérkennileg hegðun hjónanna og súrrealískar aðstæður eru enn fyndnari. Á endanum kemur að því að Holmes fer í fangelsi og gæti maður haldið að heimildarmyndinni væri þá lokið. Svo er hreint ekki og við tekur seinni hluti sem er miklu skrítnari, myrkari og óhefðbundnari en það sem á undan hefur komið.
Sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa
Eftir að Holmes fer í fangelsi líða tvö ár áður en Nathan hefur aftur samband við Billy sem hefur haldið áfram að þróa nýtt fyrirtæki hjónanna. Um miðbik myndarinnar er sérkafli tileinkaður honum þar sem karakter hans skýrist betur, brestirnir dýpka og samband þeirra hjóna verður enn undarlegra.
Síðan kemur að vendingu sem hefur tekist vel að halda leyndri fyrir almenningi og hverfist í kringum ákveðna manneskju sem Nathan fær aðstoð hjá við að fylla í eyðurnar. Ég ætla ekki að spilla hver það er en með innkomu viðkomandi afmáir Nathan enn frekar mörkin milli raunveruleika og skáldskapar. Heimildarmyndaformið er þanið ansi langt út, verkfærum skáldskapar beitt og myndin fer að líkjast fyrra efni Nathans í meira mæli.
Við þetta bætist raunar önnur vending sem snýr að framleiðslu myndarinnar og tengslum hjónanna við gerð hennar. Því skal ég ekki spilla heldur en þar er farið yfir ákveðin siðferðisleg mörk sem er almennt ekki gert í heimildarmyndum. Þetta tvennt spilast svo saman í ótrúlegum lokakafla þar sem heimildarmyndin breytist hreinlega í spennutrylli.
Titillinn You Can See Everything er vísun í orð Holmes sjálfrar um aðgengi tökuliðsins að fjölskyldunni. Raunin er hins vegar sú að sama hvað þú færð að sjá mikið muntu aldrei getað séð allt. Þrátt fyrir að dvelja með manneskju, spyrja hana spjörunum úr og fylgjast grannt með henni muntu aldrei getað komist alla leið inn að kviku.
Kvikmyndin fjallar þannig ekki síður um heimildarmyndaformið því um leið og það kviknar á myndavélinni setur fólk sig í stellingar og byrjar að leika ákveðið hlutverk, aðra útgáfu af sjálfum sér. Viðmælandinn er óáreiðanlegur, formið er takmarkað og leikstjórinn áttar sig á því þegar á líður að maður getur ekki gefið hlutlausa mynd af fólki sem maður hefur búið hjá og kynnst persónulega.
Fyrir viku sá ég myndina í tiltölulega fámennum sal (enda klukkan 16:20 á föstudagseftirmiðdag) en þrátt fyrir það veltust áhorfendur um af hlátri og tóku andköf í sameiningu. Á mánudagskvöld fór ég aftur á myndina í troðfullum sal og einhvern veginn varð hún betri við annað áhorf, ekki síst vegna þess hvað hún inniheldur mörg lög og smáatriði til að kjamsa á.
You Can See Everything er tekjuhæsta heimildarmynd í áraraðir, fólk flykkist í bíó að sjá hana og kryfur hana svo á samfélagsmiðlum. Kvikmyndin kemur út á tíma þar sem upplýsingaóreiða tröllríður öllu, gervigreindin spúir út falsefni og stjórnmálamenn komast upp með að ljúga blákalt án afleiðinga. Fielder og Oppenheim ná að taka þetta einstaka dæmi Holmes og gera að hliðstæðu fyrir svo margt sem við sjáum í dag í allri umræðu, átökum og samböndum fólks.
Niðurstaða
You Can See Everything er marglaga og ögrandi listaverk sem fær áhorfandann til að hlæja, gapa af undrun og iða af spenningi í sætinu. Kvikmyndin er karakterstúdía á konu sem hefur skapað svo þéttan blekkingarvef í kringum sig að hún lifir nánast í öðrum veruleika en við hin.
Ekki nóg með það heldur fjallar hún einnig um hve auðvelt er að snúa upp á sannleikann, hvernig við leikum stöðugt ákveðin hlutverk og hvernig frásagnir móta líf okkar, bæði frásagnir annarra og þær frásagnir sem við búum til um okkur sjálf. Þannig speglar myndin samtímann og verður raunar að myndlíkingu fyrir upplifun samtímamannsins.
Ekki síst fjallar myndin um heimildarmyndaformið, möguleika þess og takmörk. Heimildarmyndir eru óskáldað efni og eiga að fanga raunveruleikann þegar það er í raun ómögulegt. Kvikmyndatökuvélin setur fólk í stellingar, leikstjórinn mótar frásögnina með klippara og svo fær áhorfandinn einungis að sjá lítið brot af því sem gerðist. Þú færð aldrei að sjá allt.