„Pabbi minn var hörkutól. Villimaður með stórt hjarta og maður sem lét ekki mikið stoppa sig. Hann var ein stærsta lífsgjöf sem ég og börnin mín höfum fengið. Maðurinn sem elskaði mig, studdi mig og stóð við bakið á mér í einu og öllu. Ekki bara þegar lífið var auðvelt heldur líka þegar það reyndi hvað mest á mig,“ segir Agnes í færslu sinni.
Hún segir pabba sinn alltaf hafa verið einn af hennar stærstu fjársjóðum.
„Og ef ég gæti fengið eina mínútu í viðbót með þér myndi ég ekki biðja um neitt annað en að fá að faðma þig, segja þér hversu mikið þú skiptir mig máli og þakka þér fyrir allt sem þú varst mér og börnunum mínum.“
Þrír fórust og fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk um 60 sjómílur austur af landinu á miðvikudag. Björgunaraðgerðir á slysstað voru umfangsmiklar og stóðu í um tvo klukkutíma. Þá höfðu skipverjar verið nokkrar klukkustundir í köldum sjó. Þyrlan með sautján skipverja lenti á Egilsstaðaflugvelli laust fyrir miðnætti.
Áður hefur verið greint frá því að annar hinna þriggja sem lést hét Eggert Ellertsson og var 41 árs gamall.Móðir hans, Elín Halla Þórhallsdóttir, greindi frá því í færslu á Facebook í gær. Sá þriðji var frá Póllandi en hefur ekki verið nafngreindur.