„Það var krefjandi og líklega það mest krefjandi sem ég hef gert síðan ég byrjaði að starfa hérna,“ segir Elvar Már Sigurðsson, sigmaður hjá TF-Gró, í viðtali við MBL sem hefur vakið mikla athygli. Þrír sjómenn létust þegar Jökull ÞH299 sökk um 100 kílómetra undan Glettingi á miðvikudagskvöldið. Aðalsteinn Steinþórsson og Eggert Ellertsson eru meðal þeirra sem fórust en þegar þessi frétt er skrifuð er ekki búið að nafngreina þann þriðja sem lést.
„Sjálfkjörinn maður ársins!“