Í tilkynningu segir að tilefnið sé hið hörmulega sjóslys þegar skipið Jökull ÞH sökk. Þrír skipverjar fórust en fjórtán var bjargað.
Í tilkynningu kemur fram að Fossvogskapella verði opin frá kl. 17:00 og fram á kvöld fyrir öll þau sem eiga um sárt að binda vegna slyssins. Þar muni fólki gefast kostur á að eiga kyrrðarstund, biðjast fyrir, minnast þeirra sem fórust eða einfaldlega eiga samveru með öðru fólki sem upplifir sorg og óvissu í kjölfar atburðanna.
Samverustundin er samkvæmt tilkynningu jafnframt hugsuð fyrir þau sem búsett eru á höfuðborgarsvæðinu og eiga þess ekki kost að fara um langan veg til að vera nær þeim sem málið snertir.
„Þetta er sameiginlegt boð til allra, óháð trú eða lífsskoðun. Engin krafa er um þátttöku í trúarlegum athöfnum. Fólk getur komið og dvalið eins lengi og það kýs,“ segir að lokum.