Fyrir sambandinu liggur að samþykkja sjö ára fjárlög fyrir tímabilið 2028 til 2034. Aðildarríkin leggja til þeirra í samræmi við efnahagsumsvif sín. AP-fréttastofan segir að líklega verði hlutdeild þeirra um eða yfir einu prósenti af vergri landsframleiðslu.
Tillaga framkvæmdastjórnarinnar kveður á um fjárlög upp á tvær biljónir evra. Síðan þá hefur Antonio Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, lagt til hundruð milljarða evra niðurskurð á tillögum þess.
Costa boðaði til fundarins í gær til þess að reyna að miðla málum á milli tveggja andstæðra póla, að sögn evrópska blaðsins Politico. Öll aðildarríkin þurfa að samþykkja fjárlögin.
Annars vegar eru ríki eins og Frakkland, Spánn og Ítalía sem vilja auka fjárheimildir sambandsins og halda áfram hefðbundnum verkefnum þess, þar á meðal að styðja við landbúnað og styrkja ríki sambandsins sem standa höllustum fæti efnahagslega.
Ríki eins og Þýskaland og Svíþjóð vilja aftur á móti draga saman seglin og að sambandið einblíni frekar á fjárfestingar í öryggis- og varnarmálum.
Eftir tólf klukkustunda langar viðræður gengu fulltrúar ríkja sem vilja skera niður fjárlögin út af fundinum, þar á meðal Danmerkur og Svíþjóðar. Þeir sökuðu Costa um að reyna að etja þeim gegn hver öðrum. Hætt var við áform um að halda viðræðunum áfram í dag.
Vilja hespa fjárlögunum af áður en Le Pen mætir
Tímapressa er á viðræðunum þó að frestur til þess að samþykkja þau renni formlega ekki út fyrr en eftir ár.
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir að sambandið verði að samþykkja fjárlögin fyrir áramót því eftir þau geti hann ekki haldið þeim áfram svo nærri forsetakosningum í Frakklandi í apríl.
Útlit er fyrir að Marine Le Pen, frambjóðandi fjarhægrimanna, vinni sigur í forsetakosningunum. Hún er andstæðingur Evrópusambandsins og hefur talað gegn stuðningi við Úkraínu. Leiðtogar sambandsins vilja ljúka fjárlagagerðinni áður en Le Pen kemst til valda og hristir upp í hlutunum.
Vonir standa til að hægt verði að ná samkomulagi næst þegar leiðtogar ríkjanna hittast upp úr miðjum desember.
Ekki eru þó allir jafnbjartsýnir um það. Peter Magyar, forsætisráðherra Ungverjalands, sagðist ekki hafa séð nein árangur af fundinum í gær og lýsti efasemdum um að samkomulag næðist fyrir jól.
Ungverjaland er eitt þriggja ríkja sem vilja ekki taka þátt í 49 milljarða evra lánveitingu til Úkraínu fyrir næsta ár.
Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands, sem aðhyllist straumlínulagaðri fjárlög fyrir sambandið segir aftur á móti að ekki beri svo mikið á milli ríkjanna.
„En þessar lausnir á lokametrunum munu skipta sköpum,“ sagði Orpo við fréttamenn.