Vinstri­menn og sósíal­demó­kratar ekki lengur sam­herjar - Vísir

Vinstri­menn og sósíal­demó­kratar ekki lengur sam­herjar - Vísir

Vinstri­menn og sósíal­demó­kratar ekki lengur sam­herjar - Vísir

Svandís Svavarsdóttir steig út úr pólitík fyrr á þessu ári. Hún var þingmaður í 15 ár, ráðherra í 11 ár og tók ákvarðanir sem voru oft umdeildar. Svandís er næsti gestur í Sætinu.

„Ég er nú bara að gera allt mögulegt en ég held að það sé nú eiginlega ekki hægt að hætta að skipta sér af pólitík,“ segir Svandís þegar hún er spurð að því hvað hún brasi í dag.

Í stjórnarandstöðu heima í sófanum

„Ég er alin upp við það að lesa blöðin og vaka kosninganóttina og allt þetta þannig að ég hætti því nú ekki. Ég er alveg virkilega mikið að fylgjast með og stundum kannski aðeins of mikið þegar það brestur á með andsvörum úr sófanum heima hjá mér þegar mér finnst þingið vera að fara eitthvað villur vegar.“

Klippa: Vinstrimenn og sósíaldemókratar ekki lengur samherjar

Svandís stundar meistaranám í menningarfræði. Hún er ritstjóri Breiðfirðings sem er ársrit gefið út af Breiðfirðingafélaginu. Þá stundar hún ýmis félagsstörf en hún er til að mynda í stjórn Transparency á Íslandi.

„Svo er ég í stjórn nýstofnaðra Hollvina Náttúruminjasafns Íslands sem veitir nú ekki af að hafi orðið til, til þess að vera bakhjarl og stuðningur við það mikilvæga safn og þá mikilvægu starfsemi. Svo hef ég verið að grípa í ýmislegt annað, eitt og eitt verkefni og svo hef ég núna tíma til dæmis til þess að sinna heilsunni sem ég hef nú ekki verið með efst á blaði í mjög mörg ár og það er held ég ágætt að gera það líka.“

Þú ert enn mjög pólitísk, heyri ég, allavega inni á heimilinu og hefur skoðanir á hinu ýmsa?

„Já, það er ekkert hægt að sleppa því og ég náttúrulega hef mikinn áhuga á bæði pólitík dagsins og því sem er að gerast í þinginu, ríkisstjórninni, stjórnarandstöðunni og í flokkakerfinu á Íslandi. En ég hef líka gríðarlegan áhuga á því sem hefur sem betur fer verið svolítið partur af þessari menntun sem ég hef verið að sækja mér sem eru þessir straumar og þessir hugmyndastraumar sem eru í gangi í þessum samtíma.“

Hægrisinnaðar raddir háværar í hlaðvörpum

Nefnir hún nýfrjálshyggju og ýmis konar bakslag og breytingar sem hún segir að eigi sér stað í réttindamálum svo dæmi séu tekin.

„Þetta svona fléttast saman, áhuginn á alþjóðlegum straumum, hvernig þeir svo koma hér inn til Íslands og ég hef nú sagt það stundum í gríni en stundum í alvöru líka að ég held að það væri ágætt að það væru fleiri raddir frá vinstri sem væru í greiningarvinnu, til að mynda í hlaðvörpum og hér og þar. Mér finnst stundum eins og þessir strákar séu bara dag eftir dag að taka hver annan í viðtöl og það heitir Þjóðmál í dag og Spursmál hinn daginn og það eru alltaf sömu strákarnir að tala sömu hægri pólitíkina,“ segir Svandís.

„Og þó að ég bara játi það hér og nú að ég hlusti á þetta allt saman og fylgist með þessu öllu þá held ég að það væri alveg þakklátt líka að breikka svolítið þennan svona greiningargrunn um stjórnmálin af því að það skiptir miklu máli í lýðræðinu að við séum að ræða málin frá mörgum hliðum og núna þegar það vantar hreinlega vinstrið inn í þingsalinn og við erum bara ekki með neitt viðnám og mér hefur stundum fundist eins og flokkarnir sex sem eru á þingi séu meira og minna sami flokkurinn.“

Orðið svolítið sull

„Ef við tölum um náttúruvernd, tölum um útlendingamál og ýmis mannréttindamál þá finnst mér eiginlega enginn munur á því hvaða flokkur er að tala, hvort hann er í stjórn eða stjórnarandstöðu. Miðflokkurinn hrósar forsætisráðherra fyrir stefnu í útlendingamálum, ég sá það síðast bara í gær í þinginu. Þannig að þetta er orðið svona svolítið svona sull, ef ég má orða það þannig þegar það er ekkert raunverulegt viðnám frá vinstri,“ segir Svandís.

„Hver er að tala um velferðarmál? Hver er að tala um að nýta skattkerfið ekki bara til tekjuöflunar heldur líka til þess að jafna kjör? Og hver er að tala um náttúruvernd? Það er bara sótt að íslenskri náttúru og það er enginn sem lyftir flaggi inn í þingsal til þess að andæfa því.“

Útlendingamál og lögreglumál fljúgi í gegn án aðhalds

Aðspurð á hvaða málum umrætt vinstrileysi bitni mest nefnir hún útlendingamál og breytingar á lögreglulögum svo dæmi séu tekin.

„Sem eru mál sem hafa verið síendurtekin í þinginu í gegnum árin sem eru auknar heimildir lögreglu til þess að fylgjast með fólki sem hefur alltaf mætt mikilli andstöðu og miklu andófi frá vinstri. Nú virðast ekki vera margar raddir inni í þinginu sem gera það og flestir bara klappa upp svoleiðis sjónarmið sem eru alvarleg finnst mér. Við getum talað um útlendingamál. Við erum að sjá núna að það er verið að þrengja verulega að fólki sem er af erlendum uppruna á Íslandi.“

Líkir núllinu við trúartákn

Hún nefnir breytingar á framfærsluviðmiðinu sem hafa verið töluvert í fréttum og breytingar háskólaráðherra þess efnis að nemendur utan EES-svæðisins greiði skólagjöld hér á landi. Í þeim málum vanti aðhald frá vinstri.

„Svo getum við bara nefnt hægrisinnaða hagstjórn og þennan ofurþunga á núllið þar sem núllið virðist vera orðið einhvers konar trúartákn, miklu frekar heldur en að það snúist um heildræna sýn á hagstjórnina og mér finnst það dapurlegt þegar við erum að tala um ríkisstjórn sem inniber tvo hámenntaða hagfræðinga sem eru þó, virðast vera, gjörsamlega fastir í því að, að rekstur ríkisins snúist um það að stemma af einn dálk... einn dálk. Og þar erum við ekki að tala um heilbrigðisþjónustuna, velferðarkerfið, menntamálin eða húsnæðismálin eða önnur þau kerfi sem verða fyrir ágjöf núna þegar farið er í svona harkalega niðurskurðarstefnu sem á náttúrulega rætur að rekja bara beint inn í hægrið,“ segir Svandís.

„Og núna þegar boðað er, og væntanlega kemur það í ljós einhvern tímann í vikunni eða fyrir vikulokin, að það muni verða skorið niður enn um 17 milljarða, sem eru 1% af útgjöldum ríkisins, inn í aðra umræðu fjárlaga og það sem er áhugavert er það að það mun ekki hljóta hefðbundna þinglega meðferð vegna þess að umræðan verður ekki í þingsalnum um þær breytingartillögur. Þær koma inn í nefndina í annarri umræðu þannig að þær eru tilbúnar frá ríkisstjórninni og fá þá ekki umsagnir frá umsagnaraðilum og svo framvegis.“

Varðandi það að þetta eina prósent sé ekki svo mikið í stóru myndinni segir Svandís að það séu 17 milljarðar króna.

„17 þúsund milljónir króna. Þú getur ekki tekið þessar 17 þúsund milljónir úr millifærslukerfunum, úr örorku- og ellilífeyri. Þú getur ekki tekið þær úr ýmsum öðrum slíkum millifærslukerfum. Þú getur ekki tekið þær út úr útgjöldum ríkisins sem eru föst og munu alltaf verða greidd eins og lyfjakostnaður, sérgreinalæknar eða heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúss eins og það heitir í fjárlögum.“

Nefnir hún Landspítala sem dæmi og segir að hann reki sig á sirka 130 milljörðum á yfirstandandi ári

„Sem þýðir það að þú þarft að skera niður 1,3 milljarð bara á Landspítala ef það er bara 1%.“

Núllið sé pólitísk frásögn en ekki hagstjórn

Þessu lýsir Svandís sem nauðhyggju og rörsýn.

„Og ég held að það sjái það allir og ef við lesum þingræður sem eru eldri, eins og frá Kristrúnu fyrir tveimur árum eða fjórum árum, þá talaði hún öðruvísi og hún talaði um að það þyrfti að vera ákveðinn sveigjanleiki innan kerfanna til þess að geta tekist á við utanaðkomandi áföll, en nú er það orðið þannig að núllið snýst ekki bara um hagstjórn. Núllið snýst um pólitíska frásögn. Núllið snýst um það að það er búið að setja eitthvað á svið, það er búið að setja það á svið að nú mætum við saman hérna með tússtöflu og þú teiknar núll á tússtöfluna, svo klöppum við öll fyrir því og svo segjum við hallalaus fjárlög alveg dagana á enda í öllum viðtölum sem við komum fram í,“ segir Svandís.

„Allir þingflokkar stjórnarflokkanna enda öll viðtöl á því að tala um hallalaus fjárlög og þetta verður okkar mantra og þetta er í raun og veru það sem okkar pólitík stendur og fellur með. Það sem var kannski einu sinni sleggjan, svo var það Evrópusambandið og nú er það þetta. Þetta eru umbúðastjórnmál. Þetta eru ekki góð stjórnmál vegna þess að pólitík snýst ekki um bara einhverjar svona sviðsetningar heldur miklu frekar um það að bregðast við fjölbreyttu og flóknu verkefni frá degi til dags og trúðu mér að mjög mikið af því er ófyrirséð.“

Stjórnarandstaðan ekki nógu hugmyndarík

Hvernig finnst þér stjórnarandstaðan standa sig?

„Mér náttúrulega finnst að hún ætti að standa sig miklu betur og vera hugmyndaríkari. Ég lýsi nú aðallega eftir því að það komi einhverjar áhugaverðar og spennandi hugmyndir úr þeirra ranni vegna þess að það eru verulega mikil færi en það er auðvitað þannig að það vantar, sárvantar rödd frá vinstri og ég meina, þau eru ekki að fara að gagnrýna herðingar í útlendingamálum eða yfirgang gagnvart íslenskri náttúru, þau bara klappa fyrir því. Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn og Framsókn klappa bara fyrir því og þau hafa alltaf gert það, þau hafa alltaf viljað það,“ segir Svandís.

Svandís gagnrýnir Samfylkinguna töluvert.vísir/einar

„En inni í þinginu hefur sem betur fer í gegnum árin og áratugina verið viðnám og oftast hefur það verið VG og Píratar hafa líka séð til þess að það hefur verið viðnám í ýmsum málaflokkum. En núna er það þannig að þetta fólk situr þarna og horfir á, í raun og veru alvarlegar ákvarðanir og breytingar sem verið er að gera og klappar þær upp. Þannig að því leytinu til er þetta náttúrulega bara í karakter stjórnarandstöðunnar, efnislega. En svo eru þetta mál og málefni sem mér hefði fundist að mætti taka harðar á.“

Allt úr böndunum í Landsvirkjunarmálinu

Hún nefnir Landsvirkjunarmálið.

„Þar sem að algjörlega blasir við að við erum búin að vera með mjög stöðuga forystu í Landsvirkjun í 17 ár og Guð minn góður, ekki er ég sammála Herði Arnarsyni í öllu og stundum hefur mér fundist forysta Landsvirkjunar vera að fara villur vegar. En það hefur verið ákveðið traust í því utanumhaldi og svo þegar það gerist með nýrri ríkisstjórn, nýjum fjármálaráðherra sem er með nýja stjórn sem hann skipar sjálfur, einn og sér og allt fer úr böndunum. Forstjórinn í raun og veru hrekst í burtu, tekur ákvörðun um það að hann njóti ekki trausts, líður þannig að hann sé ekki með málin almennilega í höndunum,“ segir Svandís.

„Landsvirkjun er ekki hvað sem er. Landsvirkjun er ekki bara einhver verslun á götuhorni. Landsvirkjun er eitthvað sem við eigum öll og við viljum sem kjósendur, við viljum að Landsvirkjun sé ekki partur af einhverju sjónarspili eða einhverju gambli. Við viljum að Landsvirkjun sé traust og að það sé vel utan um hana haldið og að hún sé ekki undirorpin einhverjum sveiflum af því að kosningar fara svona og hinsegin.“

Ótækt að ný stjórn ráði formann á þessari stundu

Nú sé stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd með málið til skoðunar á sama tíma og stjórnin undirbýr ráðningu nýs forstjóra.

„Þetta gengur ekki. Þetta bara gengur ekki. Ef það eru efasemdir um hana [stjórnina] og efasemdir um ráðherrann í þessu efni, þá verður að framlengja tímann sem aðstoðarforstjórinn gegnir embætti forstjóra, fram yfir það að öll kurl séu komin til grafar og þá er hægt að hefjast handa aftur með mögulega breyttri mönnun á einhverjum póstum.“

„Guð minn góður, ekki er ég sammála Herði Arnarsyni í öllu,“ segir Svandís.Vísir/Vilhelm

Hún lýsir eftir því að þeir sem beri ábyrgð gagnvart eiganda Landsvirkjunar, sem sé þjóðin, að sá ábyrgðaraðili stígi inn og hægi á ferlinu.

„Þetta gengur ekki, að stjórn sem ekki er hafin yfir vafa sé á meðan hún er til skoðunar að ráða nýjan forstjóra.“

„Come on“

En hver ber ábyrgð á málinu? Er það ráðherra eða stjórnin?

„Fjármálaráðherra, ríkisstjórnin. Það eru þau sem fara með umboðið fyrir hönd okkar.“

Aðspurð hvort ráðherra ætti að víkja segir Svandís að málið snúist ekki um smekksatriði. Hún heyri forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja að þau geti ekki skipt sér af stjórn fyrirtækisins.

„Ég segi bara: Come on, þetta fyrirtæki er í eigu þjóðarinnar og þið eruð umboðsmenn þjóðarinnar. Þar sem þið farið með ráðherraembætti í umboði kjósenda í gegnum þingið og þingmeirihlutann þá þurfið þið að axla þá ábyrgð, þá pólitísku ábyrgð sem er þarna fyrir hendi og það er ekkert hægt að yppta öxlum og horfa í hina áttina þegar svona stórir hlutir eru á ferðinni. Það er hluti af hinni pólitísku ábyrgð. Það er mín afstaða í þessu.“

Þú talar töluvert um vinstrileysi á Alþingi. En þetta er það sem þjóðin vildi. Þjóðin hafnaði VG og vinstriflokkunum. Er það ekki rétt? Eða heldur þú að kjósendur líti á Samfylkinguna sem vinstri flokk?

„Já, ég held að að hluta til hafi það verið þannig að fólk taldi eftir langa ríkisstjórnarsamveru þessara þriggja flokka að það væri kominn tími til að breyta og að Samfylkingin hafi notið góðs af því á vinstri vængnum, alveg klárlega. Svo erum við náttúrulega með þetta viðmið sem eru 5% mörkin sem eru óvenjulega há ef við horfum á löndin í kringum okkur. Þannig að já, ég held að kjósendur hafi litið svo á,“ segir Svandís.

Lítil stemning fyrir umhverfismálum

„Þetta er líka spurning um ákveðna sveiflu í umræðunni og það hvað það er sem skiptir máli á hverjum tíma. Þegar ég var í framboði sem formaður VG 2024 þá reyndi ég í öllum þáttum að koma að umræðu um umhverfismál og ég er ekki að kenna fjölmiðlum um það eða hinum sem voru þar í pallborðum og þáttum og svo framvegis en það var bara ekkert rými og enginn áhugi á umhverfismálum haustið 2024.“

Hvers vegna heldur þú að svo hafi verið?

„Við sjáum að það er talað um það núna í tengslum við COP-ráðstefnuna, loftslagsráðstefnuna, að áhuginn og umræðan í heiminum sé dalandi og hefur verið það. Ungt fólk sem var í loftslagsmótmælum föstudag eftir föstudag, árum saman, Greta Thunberg sem leiddi þar alþjóðlega hreyfingu, liggur mér við að segja. En þetta dalaði og ég vona að hluti af því snúist ekki um vonleysi vegna þess að við náttúrulega lifum mjög krefjandi tíma núna og maður er auðvitað mjög hugsi yfir því þegar ungt fólk horfist í augu við bæði loftslagsvandann og áhyggjur af eigin framtíð, menntun og atvinnutækifærum út af gervigreind og blikur á lofti sem tengjast bara auknum ófriði og vígbúnaði í heiminum og svo framvegis.“

Áhugi á umhverfismálum hafi alltaf komið og farið.

„En það sem er alvarlegt akkúrat núna í þinginu er að það er enginn málsvari umhverfis- og náttúruverndar á Alþingi. Þannig að það er ekki nóg með það að það sé eyða vinstra megin heldur er eyða þar sem á að vera bæði vinstri og grænt í þinginu.“

Áttu ekki hljómgrunn og engin eftirspurn eftir VG

Þú varst nýtekin við sem formaður þegar þið genguð til þingkosninga og náðuð ekki inn á þing. Var það persónulegt áfall eða áfellisdómur yfir þér?

„Já já, stjórnmálafólk er nú líka bara fólk, en fyrst og fremst þá fann ég bara mjög sterkt fyrir því að við áttum ekki hljómgrunn og það var ekki eftirspurn eftir okkar rödd. Ég hef nú líka stundum sagt það að grunnkarakterinn í VG er andóf, gagnrýni, athugasemdir og efasemdir bæði um tiltekna og víðtekna þætti í samfélaginu en líka alls kyns óréttlæti og bakslög allra tíma.“

Flokkurinn spretti upp úr þeim farvegi og verði síðan ábyrgur flokkur með tilliti til málefnastarfs, eins og Svandís orðar það, þegar kemur að kvenfrelsismálum, vinstrimálum og grænum málum. 

„Við náum utan um þennan part af þessu pólitíska litrófi en á sama tíma erum við farin að taka þátt í málamiðlunum og við gerum það til mjög langs tíma með það fyrir augum að ná markmiðum okkar, að stíga skref í áttina að einhverju sem er mikilvægt út frá okkar pólitíska mati,“ segir Svandís.

Allir hafi sín sársaukamörk

„Þegar við lítum til baka yfir þetta tímabil VG, sem hefur verið mjög mikið í ríkisstjórn og verður í raun og veru síðan valdaflokkur, þá sjáum við að við höfum náð gríðarlega miklum árangri og í sumu meiri árangri en kjörfylgið segir til um, eins og til að mynda í náttúruverndarlögum, í þungunarrofslöggjöf, í ýmsum umhverfismálum, í þrepaskiptu skattkerfi, í fjármagnstekjuskatti og hækkuninni á honum og fleira og fleira má nefna.“

Í því felist ákveðin togstreita að því leyti að í stjórnarandstöðu hafi stjórnmálafólk frítt spil til að gagnrýna verk stjórnvalda.

„En um leið og maður er kominn inn í málamiðlunaraðstöðuna þá útheimtir það allt öðruvísi nálgun. En það er líka krefjandi að halda uppi sínum pólitíska karakter þó að maður sé í málamiðlunum. Og ég hef sjálf glímt heilmikið við þessar pælingar af því að ég er róttæk í grunninn og mér hefur sjálfri ekki fundist alltaf einfalt að taka þátt í málamiðlunum. En ég held að allir sem eru þannig lyntir pólitískt séu með sín sársaukamörk. Það þarf ákveðna hluti, ákveðin rauð strik, ef svo má segja, sem maður myndi ekki stíga yfir.“

Svandís segir krefjandi að halda uppi pólitískum karakter í stjórnarmeirihluta vegna málamiðlana.vísir/vilhelm

Gefðu okkur innsýn inn í þennan tíma. Var eitthvað sérstakt mál þar sem þú varst á leið út af fundi í fang fjölmiðla og hugsaðir: Hvernig á ég að tala fyrir þessu? Ég er bara ekki sannfærð sjálf?

„Fyrst ætla ég að segja eina hliðarsögu af því að núna er mikið talað um það af því að Ingvar Þóroddsson gekk þarna úr Viðreisn og fór inn í Sjálfstæðisflokkinn og það er ekki í fyrsta skipti sem maður sér svoleiðis tilfærslur. En svo er sagt að Jón Gnarr og Guðmundur Ingi, þeir eru að vísu utan þingflokka en þeir styðja áfram ríkisstjórnina og þetta orðfæri er mjög mikið notað. Það er sagt að þeir styðji áfram ríkisstjórnina og hvað þýðir að styðja ríkisstjórn? Þegar maður hefur mikla yfirsýn yfir löng tímabil þá áttar maður sig á því að það að styðja ríkisstjórn þýðir ekki bara að segja að maður geri það. Það er að styðja ríkisstjórnina þegar á móti blæs.“

Svandís segir að það gerist aðallega í tveimur tilvikum.

„Það er annars vegar að styðja fjárlög sem eru aldrei þannig að maður sé alsæll með þau. Maður hefði viljað setja meira í spítalann, meira í barnaverndina, meira í framhaldsskólann eða eitthvað slíkt, meira í einhverja byggingu, Grensás eða hvað það er. En niðurstaðan verður þessi og þá þurfum við líka að greiða atkvæði á móti breytingartillögunni sem kom úr stjórnarandstöðunni sem er einmitt um þessi hjartans mál.“

Og það hefur verið þér erfitt?

„Já, það er alltaf erfitt. Þegar þú kemur inn í þingsal og einhver segir: Heyrðu Svandís, af hverju viltu ekki auka framlögin í framhaldsskólann þegar ég kem með tillöguna? Og þá segi ég: Af því ég styð ríkisstjórnina.“

Margir myndu segja að þetta væri nú bara leikrit?

„Sko, já, já. En á móti kemur að þú getur ekki rekið ríkisstjórn og ríkisfjármál öðruvísi en að þetta gangi til enda. En já, það er auðvitað líka leikritið af hendi stjórnarandstöðunnar að henda út svona beitu sko, til þess að setja stjórnarflokkana í vanda og kannski sérstaklega þá þingmenn sem eru af einhverjum ástæðum valtir eða pólitískt svona vaklandi og þess vegna vil ég segja að hvorki Jón Gnarr né Guðmundur Ingi hafa tekist á við það að greiða atkvæði með niðurstöðu fjárlaga. Það er hið raunverulega, hinn raunverulegi prófsteinn á það hvort það gangi eftir.“

Hitt tilvikið þar sem reynir á það hvort stjórnarþingmenn styðji raunverulega ríkisstjórn þegar á móti blæs er það að verja ráðherra vantrausti.

„Það er ekki einfalt að gera það ef á undan hefur gengið mjög mikið pólitískt óveður sem er eiginlega reglan. Ef það endar með vantrausti, eða vantrauststillögu eins og það heitir, á tiltekinn ráðherra þá þarf ríkisstjórnin öll að standa saman um það að fella það vantraust. Í því óveðri sem er í aðdragandanum að slíkri atkvæðagreiðslu þá hefur oft verið urgur í baklandi flokkanna og jafnvel hafa komið upp umræður og pælingar um það að þetta sé nú eiginlega bara ekki hægt lengur eða getum við verið með þennan ráðherra í ríkisstjórn sem við styðjum og svo framvegis. Og þetta gerist.

Ekki erfitt að verja Jón Gunnarsson vantrausti

Ertu að lýsa þarna eigin raunum? Ég man eftir vantrauststillögu á Jón Gunnarsson sem þá var dómsmálaráðherra?

„Já, það er dæmi.“

Fannst þér það erfitt að verja hann?

„Mér finnst það ekki erfitt vegna þess að ég er bara með inni í mænunni á mér hvað það þýðir að vera í ríkisstjórn. Þannig að ég fer ekki í gegnum svipugöng samviskubits í hvert skipti sem ég geri það. Ég er algjörlega klár á því að flokkarnir bera sjálfir ábyrgð á mönnun í sína ráðherrastóla og ég get ekki ætlast til þess að allir ráðherrarnir í hinum flokkunum fari inn í gegnum nálarauga míns flokks. Frekar en að ég geti þolað það að ég þurfi að komast í gegnum nálarauga hinna flokkanna sem ráðherra í VG. Þannig að mér hefur ekki fundist þetta erfitt.“

Slíkt útheimti oft mikla skruðninga pólitískt og þá reyni á þá sem eru ekki inni í þingflokksherberginu vegna þess að þingflokkar tali sig alltaf saman og ákveði að snúa bökum saman.

„Og það hefur nú stundum verið sagt að það sé aldrei eins mikil sigurvíma í ríkisstjórnarflokkum eins og þegar ríkisstjórnin er nýbúin að standa af sér vantraust. Af því að þá verður svona mikill léttir og mikil samstaða en aðdragandinn getur oft verið ansi hrikalegur.“

Evrópusambandsumsóknin erfiðust, svo útlendingamálin

En aftur að spurningunni. Getur þú rifjað upp eitthvað atvik úr þessari ríkisstjórnartíð þar sem þér fannst erfitt að verja mál stjórnarinnar? Hver var erfiðasta málamiðlunin?

„Ég held að það hafi kannski verið í ríkisstjórninni frá 2009-2013 og í fyrsta lagi þá gengum við í VG mjög langt, fannst mér, í því að sannfæra okkur sjálf og hvert annað um það að það væri skynsamlegt á þessum tímapunkti að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Mér fannst erfitt að rökstyðja það en ég gerði það og ég gerði það vegna þess að mér fannst mikilvægt að sýna samstöðu með stjórnarsáttmálanum en um leið að þá fann ég að þetta var VG mjög erfitt og það er eiginlega flóknasti tímapunkturinn, þegar maður finnur svona togstreituna í baklandinu.“

„Sjálfstæðisflokkurinn sótti það mjög grimmt“

Hún nefnir líka breytingar á útlendingalögum í tíð síðustu ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.

„Þar sem Sjálfstæðisflokkurinn sótti það mjög fast að breyta útlendingalögum og herða þau. Það var okkur mjög þvert um geð og mjög á móti skapi og þegar ég síðan hafði tekið við formennsku þarna í október 2024 þá sagði ég það fullum fetum að VG gæti ekki staðið að frekari breytingum á útlendingalögum. Og Sjálfstæðisflokkurinn sótti það mjög grimmt og núna hefur Þorbjörg Sigríður bara tekið það og klárað það. Og nú eru engin andmæli.“

„Og ég meina, Samfylkingin talar um Danmörku og dönsku kratana Mette Frederiksen sem einhvers konar leiðtoga og bandamann og Mette Frederiksen er að tala núna um hin hræðilegu algjöru útskipti sem er bara orðræða öfgahægrisins og það bara fer um mann þegar íslenskir kratar eru komnir í þetta kompaní vegna þess að í grunninn, og aftur, svo ég hoppi nú hérna fram og til baka í lífinu, ég er alin upp í pólitík og alltaf mikil pólitík heima hjá mér og pabbi var bæði blaðamaður og ritstjóri og pólitíkus og ráðherra og allt það, ég er alin upp við að það skipti máli að vinstrimenn og sósíaldemókratar séu samherjar.“

Vinstrimenn og sósíaldemókratar ekki lengur samherjar

Eru þeir það í dag?

„Þeir eru það ekki í dag, ekki á Íslandi. Og mér finnst það verra og mér rennur það til rifja þegar ég finn Samfylkinguna síga svona og leka svona yfir til hægri. Mér finnst það dapurlegt og mér finnst það vont bara fyrir íslensk stjórnmál að það gerist. Og Samfylkingin er náttúrulega svona miðjuvinstri, hefur verið það, en það er varla hægt að sjá slík einkenni á henni akkúrat núna.“

Pabbi samfylkingarmaður með litlum staf

Hún rifjar upp orð föður síns, Svavars Gestssonar, og segir að hann hafi kallað sig samfylkingarmann með litlum staf.

„Það er að segja, vildi samfylkingu vinstrimanna, sósíalista og sósíaldemókrata. Mér hefur fundist það skipta máli og það skiptir máli upp á þær breytingar sem hægt er að gera á samfélaginu í áttina til félagslegs réttlætis og jöfnuðar að það séu bæði sterkur vinstriflokkur og sterkir sósíaldemókratar sem missa ekki sjónar á þessum grundvallaratriðum.“

Svandís saknar þess að sjá vinstrimenn og sósíaldemókrata sem samherja. Það sé ekki lengur staðan á Íslandi.vísir/einar

Svandís segir að verkalýðshreyfingin tali um að hún sé kölluð minna til ráðslags en í tíð síðustu ríkisstjórnar og þá hafi henni einnig ekki þótt nóg um samtal.

„Og það er meira að segja þannig að það er verið að gera lagabreytingar og verkalýðshreyfingin er ekki kölluð inn á nefndarfundi til að gera grein fyrir sínum umsögnum þegar verkalýðshreyfingin er kannski eini aðilinn sem talar þá inni í þingnefndinni fyrir félagslegum sjónarmiðum. Þannig að þetta er allt svona varhugaverð þróun, finnst mér.“

Viðreisn og Flokkur fólksins hverfist um formanninn

Hún segir Samfylkinguna á áhugaverðum stað og lýsir Flokki fólksins og Viðreisn þannig að þeir tveir flokkar hverfist svolítið um persónu formannsins.

„Það er svolítið svona karakter og stemningin í kringum formanninn sem býr flokkinn til, frekar en að maður hafi sterka tilfinningu fyrir því að það sé alvöru svona bakland, flokksráðsfundir, landsfundur og eitthvað sem sé í stefnumótun og ákvörðun. Heldur er þetta meira spurning um stemningu og bara svona stuð. Flokkar af slíku tagi sem eru svona leiðtogaflokkar, þeir gefa mjög hratt eftir vegna þess að inntakið er bara ekki eins pottþétt eins og í þessum eldri og þroskaðri flokkum.“

Svandís víkur að Viðreisn sem hún segir að sé í ofsalegum vandræðum.

„Það rekur hvert málið annað í þeim efnum og núna síðast hefur verið rætt um þessar verktakagreiðslur Þorgerðar til Heiðu Kristínar þar sem mikið var talað um það í aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu að nú ætti pólitíkin að draga sig í hlé og leyfa þjóðinni svolítið að ræða málin en á sama tíma er sem sagt ráðinn sérstakur ráðgjafi sem snýst bara um þessar kosningar og hún er ráðin á verktakaprís og þegar Þorgerður er spurð þá svarar hún bara með útúrsnúningum, sem gerðist núna í þinginu í vikunni.“

Hún nefnir einnig brotthvarf Jóns Gnarr og Ingvars Þóroddssonar sem sé orðið mynstur.

„Þetta eru ekki stök vandamál, þetta eru ekki stakar uppákomur og það sem ég nefndi líka áðan að koma inn í fjárlaganefnd með svona groddalegar niðurskurðartillögur milli fyrstu og annarrar umræðu fjárlaga og ætlast til þess að stjórnarflokkarnir bara stimpli það. Það er ekki lýðræðislegt. Þetta eru vinnubrögð sem snúast um það að framkvæmdavaldið í raun og veru hafi fyrsta og síðasta orðið í öllu og í þinginu séu svona auðsveipir þingmenn sem bara klára að greiða atkvæði og skila áformum ríkisstjórnarinnar í höfn.“

Telur að gagnrýnisraddir í Samfylkingunni haldi sig til hlés

Samfylkingin mælist stærsti flokkurinn á Alþingi í könnunum og hefur fylgið verið nokkuð stöðugt undanfarið.

„Samfylkingin stendur traustum fótum í þeim veruleika að vera flokkur forsætisráðherra sem hefur ekkert aðhald frá vinstri en er þó sá flokkur sem samkvæmt skilgreiningu er lengst til vinstri af þessum ríkisstjórnarflokkum. Og á meðan Samfylkingin nýtur svona mikils fylgis í skoðanakönnunum þá halda þau sig til hlés sem eru með mestar gagnrýnisraddir þar innanbúðar.“

Kvöldsímtölin snúi að vesenismálum en ekki landsmálum

Það sé gömul saga og ný að þegar flokkum gangi vel sé línan sú að best sé að rugga ekki bátnum. Hún segist sannfærð um að eftir því sem misserin líði muni uppákomur í Viðreisn og Flokki fólksins hafa áhrif á ríkisstjórnina í heild sinni.

Samfylkinguna líka?

„Já, að sjálfsögðu. Það er bara þannig að það er enginn sem fer óskaddaður út úr ríkisstjórn sem situr uppi með... ég meina, maður bara veit hvernig svona hlutir virka. Ef einn er að hætta, annar er að fara, það er verktakagreiðsla og það er þetta og það er hitt. Um hvað heldur þú að símtölin séu á kvöldin? Um hvað er verið að ræða í hliðarherbergjum? Hvað er verið að spjalla um í þingflokknum? Er verið að tala um stöðu Landspítala? Er verið að tala um stöðu framhaldsskólans? Er verið að tala um Náttúruminjasafn? Nei, það er verið að tala um vesenið heima hjá mér, vesenið í okkar röðum. Og þessi orka sem fer úr þessu forystuliði í það að leysa úr þessum málum, hún er þá ekki að fara í það að stýra landinu.“

Slíta hefði átt ríkisstjórninni vorið 2023

Það er hennar mat að það mæði mest á ríkisstjórnum þegar liðsmenn þeirra þurfi að verja hina.

„Það er hægt að ganga fram fyrir skjöld og verja sitt eigið fólk og segja bara: Ég veit að þetta er vandaður gæi og ég veit að hann gerir allt vel og fallega. Hann er í tímabundnum vandræðum og ég ætla bara að vera með honum í gegnum það og við tökum þetta saman. En að fara að verja svo einhvern sem er í hinum flokknum sem þú ert ósammála í hjartanu og þú situr svolítið uppi með við ríkisstjórnarborðið. Og þegar það verður ítrekað, þegar Kristrún þarf ítrekað að verja að það sé óróleiki inni í Viðreisn, þá hefur það áhrif. Það hefur áhrif til, til skamms tíma en líka til langs tíma. Og nú er ég bara að tala út frá reynslu.“

Ég heyri að þú ert mikill liðsmaður. En ef þú horfir til baka og hugsar um hagsmuni Vinstri grænna, hefði þá átt að slíta þessu ríkisstjórnarsamstarfi miklu fyrr?

„Já, ég hugsa það. En hvort það átti að vera miklu fyrr... ég hugsa að það hefði átt að slíta því vorið 2023. En þetta eru bara svo fullkomlega gagnslausar pælingar vegna þess að það var ekki gert.“

Dugaði ekki að fara með bjór í rútu í hópefli á Þingvelli

En voru umræður um það á þessum tíma um að nú væri þetta komið gott?

„Ef við bara flettum upp því sem var að gerast vorið 2023 þá var það þing sem kláraði eiginlega ekki neitt, kláraði bara mjög fá mál. Haustið 2023 var farið í það að reyna að búa til eitthvert svona hópefli. Þingflokkar stjórnarflokkanna fóru á Þingvöll með bjór í rútunni og svo var haldinn einhver vinnufundur og samhristingur og eitthvað svona og það var bara orðið meira óbragð heldur en gleði af samstarfinu.“

Aftur á móti hafi ráðherrar viljað klára sín mál.

„Þú ert með formenn sem hafa metnað til þess að ljúka kjörtímabilinu og svo framvegis og framvegis. Og svo þegar árið 2024 kemur og Guðni ákveður að hætta sem forseti, ég greinist með krabbamein í janúar og Katrín ákveður að fara í forsetaslaginn þá erum við komin með alls konar aðrar breytur sem hafa síðan áhrif auðvitað á samstarfið og þá stöðu sem við vorum í þá. En það bara hefur svo lítið upp á sig að horfa svona um öxl og reyna að finna út úr því hvenær við hefðum átt að láta gott heita.“

Hún segist þó fullviss um að mikilvæg mál hafi verið kláruð á þessum tíma þó að samstarfið hafi verið erfitt.

„Ég vil nefna breytingar á örorkulífeyriskerfinu. Það var ofsalega mikilvægt mál. En já, ég held að svona eftir á að hyggja og þegar maður horfir til baka þá hefði það verið tímapunktur sem þessari ríkisstjórn hefði verið sýndur meiri sómi vegna þess að hún var nefnilega að sumu leyti svolítið merkileg. Hún var mynduð þvert yfir hið pólitíska litróf og á þeim tímapunkti sem þurfti virkilega á slíku að halda. Vegna þess að það hafði verið mjög mikill pólitískur óróleiki í samfélaginu.“

Var vinsæl framan af?

„Mjög vinsæl framan af og það sem gerist líka í kosningunum 2021 og kom held ég öllum á óvart var það að ríkisstjórnin fékk aukið umboð í kosningum og það hefur bara ekki gerst að ríkisstjórn leggi verk sín í dóm kjósenda og fái aukið umboð.“

En var það ekki að einhverju leyti vegna Covid? Fólk vildi ekki óstöðugleika vegna faraldursins?

„Jú, ég held að það sé ekki nokkur spurning að það hafi verið að mörgu leyti út af því. Af því að það verkefni gerði það að verkum að samfélagið þurfti svona að snúa bökum saman og að sumu leyti að setja svona pólitískt þvarg til hliðar. Þannig að jú, ég hugsa að það hafi skipt máli en þá var náttúrulega bara umboðið að við þurftum að framlengja okkar samstarf. Annað hefði bara verið mjög skrítið og það gerðum við. En það síðan hvernig ríkisstjórnin kláraði og hvernig hún hætti á sínum tíma það fannst mér dapurlegt og ég hefði viljað sjá þessari tilraun sýndur meiri sómi í lokin.“

Hvalveiðimálið hafi snúist um meira en hvalveiðar

Þegar Svandís var matvælaráðherra tók hún ákvörðun um að fresta útgáfu hvalveiðileyfis tímabundið. Gríðarleg umræða skapaðist um málið og var þessi ákvörðun umdeild. Umboðsmaður Alþingis sagði að hún hefði farið út fyrir lagaheimildir sínar í málinu.

„Mig grunaði að þetta yrði stórt mál. Hvalveiðar snúast ekki í íslenskri pólitík um það að veiða hval eða veiða ekki hval heldur snýst þetta um sjálfsmynd. Þetta snýst um ákveðna pólitíska þræði sem liggja um samfélagið og það sem vakti fyrir mér fyrst og fremst til að byrja með var að setja málið á dagskrá.“

Hún segir að sumir hafi varað hana við því að allt yrði brjálað.

„En mér fannst einmitt mikilvægt að setja þetta mál á dagskrá af því að ég óttast ekki þessi átök. Mér finnst þau mikilvæg. Mér finnst mikilvægt að það sé tekist á um mál af þessu tagi. Og það sem ég hugsaði með mér þegar ég settist inn í matvælaráðuneytið var: Það þarf að gefa svona umræðunni meira súrefni.“

Svandís segir að á þessum tíma hafi stuðningur við hvalveiðar verið 60% í skoðanakönnunum á móti þeim 40% sem voru andvígir. Það hafi breyst með tímanum.

„Af hverju breyttist það? Fyrst og fremst vegna þess að umræðan um dýravelferð fór algjörlega í forgrunn, það er að segja að það væri dýraníð að drepa hval með þessu móti.“

Hún setti þá skyldu í reglugerð að starfsmenn hvalveiðibáta ættu að mynda hvert einasta dráp svo að Matvælastofnun gæti skrásett hvernig til tækist og hversu langan tíma tæki að drepa dýrin. Þannig vildi hún að umræðan færi fram á grundvelli gagna en ekki tilfinninga.

„Og það sem gerðist á mínum tíma í matvælaráðuneytinu var að það lá fyrir að hvalveiðar á Íslandi eru barn síns tíma og það fer ekki neitt. Hvort það tekur tvö ár eða fimm ár að hætta þessu er í mínum huga ekki stóra málið heldur það að við hættum þessu. Og ég vona innilega að það gerist vegna þess að þetta er dýraníð og þar fyrir utan er þetta bara ekki sjálfbært. Þetta stendur ekki undir sér á nokkurn hátt.“

En það skiptir máli hvernig maður fer að þessu. Umboðsmaður Alþingis sagði þig hafa farið út fyrir lagaheimildir. Það gilda lög og reglur í landinu en svo eru ráðherrar með einhverja pólitíska sannfæringu. Fórst þú fram úr þér í málinu?

„Nei, mér finnst það ekki. Það sem gerist þarna, af því að þú ert að vísa í umboðsmann Alþingis. Umboðsmaður hann í raun og veru leggur áherslu á það að tiltekin sjónarmið, sem eru þessi sjónarmið stjórnsýsluréttarins sem snúast um meðalhóf, hafi ekki verið á nægilega traustum grunni. Það er punkturinn sem umboðsmaður skilur eftir og segir þá að meðalhófið hefði átt að snúast um það að upplýsa fyrr um áformin. Ef ég væri núna í andsvari við umboðsmann þessa tíma þá gæti ég sagt: En ég var ekki með gögnin fyrr en daginn áður. Það var staðan.“

Fagráð um dýravelferð hafi skilað þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að stunda hvalveiðar innan ramma laganna sem snúa að velferð dýra.

„Þá segi ég við mitt ráðuneyti: Hvað er til ráða? Við erum með tvenns konar lagabókstaf. Við erum með lögin um að það megi veiða hval, eldgömul lög og við erum með dýravelferðarlögin og þetta frá fagráðinu.“

Hún segir að ráðuneytið hafi undirbyggt allar þær ákvarðanir sem hún hafi tekið á þessum tíma.

„Það er ekkert sem ég geri þarna sem segir bara: Hey, ráðuneyti, bíðið þið... ég er á móti hvalveiðum og ætla bara að ganga í málin. Það hefði ég aldrei gert af því að það getur maður ekki gert.“

Enda sé ráðherra tvennt: pólitíkus og embættismaður.

„Ráðherra getur alveg verið brjálaður pólitíkus og ráðherra getur verið með alls konar skoðanir og allt mögulegt og talað heitt fyrir þeim. En ráðherra er líka embættismaður og ber að hreyfa sig bara innan þeirra laga og reglna sem þingið hefur heimilað honum.“

Brjáluð út í Bjarna

Hún segist fullviss um að hún hafi verið innan ramma laganna. Hún hafi ekki sett blátt bann við hvalveiðum heldur frestað útgáfu leyfisins á þeim grunni að hún þyrfti frekari upplýsingar frá þeim sem haldi á leyfinu.

Svo springur ríkisstjórnin. Þú ákveður að taka ekki þátt í starfsstjórninni og Bjarni Benediktsson kemur inn í matvælaráðuneytið. Sama ráðuneyti, sömu upplýsingar og hann leyfir veiðarnar.

„Já, já.“

Og hvað? Varst þú brjáluð?

„Já, já, alveg. Fyrir utan það að hann gerir þetta sem ráðherra í starfsstjórn sem er líka strangt tekið, mjög vafasamt, vegna þess að ráðherra í starfsstjórn, starfsstjórnin í raun og veru hefur skert umboð vegna þess að það er búið að boða til kosninga. Þannig að hún hefur ekki þann trausta meirihluta þingsins sem ríkisstjórn hefur alla jafna til þess að framkvæma vilja þingsins.“

„Þarna vinnur formaður Sjálfstæðisflokksins bara á skrifborðinu og tekur ákvörðun um fimm ára framlengingu á leyfinu og að mínu mati er það ekki hafið yfir vafa að það hafi verið í lagi. En það varð niðurstaðan.“

Verður æpandi á þingpöllunum

Fjallað hefur verið um það að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ætli að banna hvalveiðar með frumvarpi á Alþingi.

„Ég hef ekki séð það enn þá og ég veit ekki hvernig það lítur út. Væntanlega kemur það í samráðsgátt núna fyrir jól, mér finnst það líklegt. Og það verður bara spennandi að sjá hvernig það verður. Ég mun bara vera á hliðarlínunni og hvetja hann til dáða. Ég get bara verið æpandi hress á þingpöllunum þegar hún mælir fyrir því. En núna get ég sagt það alveg fullum fetum að ég vona og veit að hvalveiðar við Ísland eru barn síns tíma.“

Rósa Björg Brynjólfsdóttir tók við formennsku í Vinstri grænum fyrr á árinu. Hún var þingmaður Vinstri grænna en sagði sig úr flokknum árið 2020 og fór yfir í Samfylkinguna. Hún snéri svo aftur í VG árið 2024.

Hvernig líst þér á stöðu mála hjá flokknum í dag?

„Ég held að svona alveg í tengslum við það sem við vorum að tala um áðan með að þetta eru alltaf ákveðnar pendúlhreyfingar og mér finnst það vera svona í pólitískri umræðu og undiröldu núna að fólki er að verða það sífellt meira ljóst hversu mikilvægt það er að vera með vinstri rödd inni í hinni pólitísku umræðu en ekki bara í umræðunni heldur líka í lagasetningunni. Það skiptir svo miklu máli í bara nefndarvinnu og svo framvegis að þessi rödd sé alltaf inni í því hvernig frumvarp verður að lögum. Þannig að mér finnst skilningurinn í samfélaginu vera vaxandi líka.“

Hún segist sannfærð um að fylgið leiti aftur til vinstri, þannig hafi það alltaf verið.

„Við sjáum það í skoðanakönnunum að við erum farin að sjá að við erum að komast upp í hin mjög svo dramatísku 5% sem skipta mjög miklu máli upp á það líka að kjósendur hugsi: Það er gagn í atkvæðinu mínu. Það skiptir máli hvert ég set það. Og um leið og kjósendur átta sig á því að við erum að tala um slíka möguleika af því að valkosturinn verður að vera fyrir hendi og það er nú annað sem að, af því við vorum áðan að tala um stjórnarandstöðuna, ef stjórnarandstaðan er ekki álitlegur valkostur fyrir kjósendur þá er erfitt fyrir fólk að fara af ríkisstjórnarflokki eða sérstaklega forystuflokki í ríkisstjórn.“

Það vakti athygli þegar nýr formaður VG sagðist ætla að greiða atkvæði með já-i í þjóðaratkvæðagreiðslunni enda hefur það verið í stefnu flokksins að Íslandi sé betur borgið utan Evrópusambandsins.

Heldur þú að það sé mikil kúvending á stefnu flokksins með innkomu nýs formanns? Hún hefur að einhverju leyti verið flokkaflakkari?

„Það skiptir náttúrulega bara mjög miklu máli að ný forysta VG fái það rými, svigrúm og súrefni sem þarf til þess að drífa flokkinn áfram. Það skiptir mjög miklu máli en um leið skiptir líka miklu máli að gæta að sögunni, reynslunni og því sem við eigum í pokahorninu af því að það er ofboðslega dýrmætt að hafa verið með alla þessa reynslu,“ segir Svandís.

„Þú varst að telja upp í byrjun þessa viðtals bara reynsluna af því að hafa verið í fjölmörgum ráðuneytum og mismunandi ríkisstjórnum og svo framvegis. Þetta er reynsla sem á heima í VG, hún er okkar og sú reynsla er eitthvað til að byggja á og til þess að byggja á framtíð. Þannig að ungt fólk sem hefur áhyggjur af náttúruvernd, loftslagi, húsnæðismálum, gervigreind, menntuninni sinni og atvinnunni, ófriðinum í heiminum að það unga fólk þarf að geta kosið vinstri og geta kosið grænt.“

Ólíkleg endurkoma en með pólitík á heilanum

Þú ert rammpólitísk. Langar þig aftur út í stjórnmál?

„Lífið er í köflum og lífið skiptist í tímabil. Ég held að það skipti máli að vera ekkert að fyllast einhverjum trega eða eftirsjá. Lífið sem ég lifi núna og það sem ég er að gera bæði í námi, í hreyfingu, í því að taka þátt í ýmis konar félagsstörfum og sinna fólkinu mínu og svo framvegis er bara mjög spennandi og gott líf og ef ég væri bara upptekin við það alla daga að sitja í andsvörum í sófanum mínum og vera að skammast í þingi þá væri það nú ekki mjög innihaldsríkt líf. En ég losna ekki við það að hafa brennandi áhuga á pólitík og það er líka pólitík að vera í Hollvinasamtökum Náttúruminjasafns eða vera í Transparency á Íslandi og það er líka pólitík að pæla í straumum og stefnum í menningarfræði.“

En ætlar ekki að verða aftur atvinnupólitíkus?

„Mér finnst það mjög ólíklegt.“

En útilokar það ekki?

„Það er ekkert hægt, lífið er ekki þannig. Það er ekki þannig en mér finnst það mjög ólíklegt. Og ég svaraði þér alveg af fullri einlægni að mér finnst það mjög ólíklegt.“

#ekki #lengur #samherjar #sósíaldemókratar #vinstrimenn


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262967926d/vinstrimenn-og-sosialdemokratar-ekki-lengur-samherjar

📰 Aðrar fréttir

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn hækkar skatta á Seltjarnarnesi – skipbrot – Þór bæjarstjóri hlýtur að víkja
📅 28.11.2026 👁️ 0
Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn hækkar skatta á Seltjarnarnesi – skipbrot – Þór bæjarstjóri hlýtur að víkja
Sjálfstæðismenn sem farið hafa með meirihluta í bæjarstjórn Seltjarnarness frá upphafi hafa ávallt lagt höfuðáherslu á að útsvar á Nesinu sé lægra en ...
Jónína átti pláss á Jökli í túrnum örlagaríka en þurfti að hætta við
📅 28.11.2026 👁️ 0
Jónína átti pláss á Jökli í túrnum örlagaríka en þurfti að hætta við
Í gærkvöldi greindi DV frá því að stýrimaðurinn Óli Ásgeir Stueland hafi átt að vera í túrnum á Jökli ÞH299 þegar skipið sökk á miðvikudagskvöld með þ...
Vikulokin í beinni: Öryggismál á sjó í skugga harmleiks
📅 28.11.2026 👁️ 0
Vikulokin í beinni: Öryggismál á sjó í skugga harmleiks
Rætt verður um öryggismál á sjó í fyrri hluta Vikulokanna í dag. Þrír af sautján skipverjum á Jökli SÞ fórust þegar skipið sökk á miðvikudagskvöldið. ...
Átti að vera um borð þegar að skipið fórst - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 0
Átti að vera um borð þegar að skipið fórst - Vísir
Þetta skrifar Óli Ásgeir Stueland, sem var ráðinn yfirstýrimaður á Jökli ÞH, á Facebook-síðu sinni. Þrír létust þegar skipið sökk og fjórtán var bjarg...
Skorti full­búna galla og gegnblotnuðu - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 0
Skorti full­búna galla og gegnblotnuðu - Vísir
„Svo sé ég bátsmanninn hlaupa upp í brú. Ég fylgi honum og sem betur fer gerði ég það af því ég vissi ekkert hvað var í gangi,“ sagði Ásgeir Elí Gerða...
Seven students killed and nearly 100 injured in explosion in Afghanistan, official says
📅 28.11.2026 👁️ 0
Seven students killed and nearly 100 injured in explosion in Afghanistan, official says
A spokesman for Afghanistan's interior ministry says the blast was caused by carelessness at an explosives depot nearby.
Sjóslysin sem mótuðu Ísland og Íslendinga
📅 28.11.2026 👁️ 0
Sjóslysin sem mótuðu Ísland og Íslendinga
Sjóslys fiskiskipsins Jökuls austan við Gletting er eitt mannskæðasta sjóslys síðari ára. Þrír létust en fjórtán var bjargað á ótrúlegan hátt við gríð...
Ládeyða á verðbréfamarkaði
📅 28.11.2026 👁️ 0
Ládeyða á verðbréfamarkaði
Fasteignaverð hefur hækkað um tugi prósenta á Íslandi frá árinu 2021 þótt lítið hreyfist þar nú. Á sama tíma hefur hlutabréfamarkaðurinn skilað neikvæ...
Þingmenn vilja kanna samstarf við ríki utan Evrópu um móttöku hælisleitenda
📅 28.11.2026 👁️ 0
Þingmenn vilja kanna samstarf við ríki utan Evrópu um móttöku hælisleitenda
Fjórtán þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks leggja til að dómsmálaráðherra kanni hvort Ísland geti tekið þátt í samstarfi við örugg ríki utan Evró...
OpenAI og Apple fara í mál við hvort annað á víxl
📅 28.11.2026 👁️ 0
OpenAI og Apple fara í mál við hvort annað á víxl
Gervigreindarfyrirtækið OpenAI hefur höfðað gagnmálsókn á hendur Apple en síðarnefnda fyrirtækið fór í mál við OpenAI í sumar og sakaði það um að hafa...
Leið­togi sér­trúar­safnaðar sak­felldur fyrir 123 mann­dráp til við­bótar - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 0
Leið­togi sér­trúar­safnaðar sak­felldur fyrir 123 mann­dráp til við­bótar - Vísir
Presturinn Paul Mackenzie er stofnandi Good News International-kirkjunnar en þetta er nýjasti dómurinn í röð sakfellinga gegn honum eftir að hundruð m...
Par með barn handtekið
📅 28.11.2026 👁️ 2
Par með barn handtekið
Meðal þess sem kom til kasta lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt var par með barn meðferðis.Í dagbók lögreglunnar kemur fram að í La...
Seven arrested in major drug raid in south Tenerife
📅 28.11.2026 👁️ 1
Seven arrested in major drug raid in south Tenerife
The National Police have arrested seven people and seized more than 34 kilos of cannabis products during a major operation targeting an alleged drug t...
Sjúklingur lést eftir grimmilega meðferð starfsfólks
📅 28.11.2026 👁️ 1
Sjúklingur lést eftir grimmilega meðferð starfsfólks
Ásakanir um ofbeldi gegn sjúklingum á geðheilbrigðisstofnunum hafa skekið Króatíu og mikil reiði hefur gripið um sig í landinu. Upptökin má rekja til ...
Vatnsdalsbændur á kafi í kyn­bótum - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 1
Vatnsdalsbændur á kafi í kyn­bótum - Vísir
Þetta kemur fram í þættinum „Um land allt“ á Sýn+ þar sem blómlegar sveitir í Húnabyggð eru heimsóttar. Þar er Þing beint framhald Vatnsdals með hið f...
Kyrrðarstund í Fossvogskirkju
📅 28.11.2026 👁️ 0
Kyrrðarstund í Fossvogskirkju
Sumir skipverjanna fjórtán sem komust lífs af eftir að Jökull ÞH sökk austan við landið á miðvikudagskvöld hittust á sameiginlegri kyrrðarstund á vegu...
Lægð, eldingar og gular við­varanir - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Lægð, eldingar og gular við­varanir - Vísir
Vindhviður við fjöll gætu staðbundið farið yfir 35 metra á sekúndu þar sem viðvaranir eru í gildi. Búast má við dimmu hríðarveðri á fjallvegum á Norðu...
Fórnar­lambið í Reyk­holti rýfur þögnina - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Fórnar­lambið í Reyk­holti rýfur þögnina - Vísir
Samuel átti sér einskis ills von þegar ráðist var inn á heimili hans. Honum var haldið nauðugum í fjóra daga þar sem hann var beittur hrottafengnu ofb...
More than 1.85 million Canary Islanders eligible to vote in General Election on Sunday
📅 28.11.2026 👁️ 2
More than 1.85 million Canary Islanders eligible to vote in General Election on Sunday
More than 1.85 million people across the Canary Islands are eligible to vote in Spain's general election tomorrow, Sunday 29th November, as the countr...
Álfahugmyndir fyrir þreytta jólaálfa í desember
📅 28.11.2026 👁️ 1
Álfahugmyndir fyrir þreytta jólaálfa í desember
Á mörgum íslenskum heimilum er það orðin hefð að taka á móti jólaálfum. Fyrir þá sem ekki þekkja til urðu þessar heimsóknir að hefð í kringum 2020 og ...
Skúrir og él víða en síður norðantil
📅 28.11.2026 👁️ 2
Skúrir og él víða en síður norðantil
Von er á skúrum eða éli víðast hvar um landið í dag en lítilli úrkomu norðantil. Gera má ráð fyrir sunnan- og suðaustanátt upp á 8-15 metra á sekúndu ...
Par hand­tekið - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Par hand­tekið - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Sex gistu fangaklefa á sjötta tímanum í morgun. Í Árbæ var einstaklingur handteki...
Rússar telja sig komna með keppnisrétt í alþjóðlegum íþróttum – er það svo?
📅 28.11.2026 👁️ 1
Rússar telja sig komna með keppnisrétt í alþjóðlegum íþróttum – er það svo?
Vladimír Pútín forseti Rússlands keppti í íshokkíi með gömlum rússneskum goðsögnum í íþróttinni í Sochi árið 2019. Nokkuð sem hann gerði reglulega áðu...
Bronson Reed: Australian WWE star dies aged 38
📅 28.11.2026 👁️ 4
Bronson Reed: Australian WWE star dies aged 38
Tributes have flooded in for the 38-year-old Australian who is survived by his pregnant wife, Paige, their daughter.
Rain alerts in western Canary Islands as cloudy weekend begins
📅 28.11.2026 👁️ 2
Rain alerts in western Canary Islands as cloudy weekend begins
The Canary Islands are facing another changeable day of weather today (Saturday, 28th November), with weather warnings for rain in the western islands...
Pensions and benefits services still down after 'cyber incident'
📅 28.11.2026 👁️ 2
Pensions and benefits services still down after 'cyber incident'
The UK's former chief technology officer says the Department for Work and Pensions may have been hit by hackers, but the government has not confirmed ...
DWP pensions and benefits services still down after 'cyber incident'
📅 28.11.2026 👁️ 0
DWP pensions and benefits services still down after 'cyber incident'
The UK's former chief technology officer says the Department for Work and Pensions may have been hit by hackers, but the government has not confirmed ...
Dags dag­lega ljúgum við án þess að blikka augum - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 4
Dags dag­lega ljúgum við án þess að blikka augum - Vísir
Við köllum þetta oft „hvíta lygi“. Réttlætum að þetta sé svo saklaust. Ekki beint lygi. Að segja ósatt er samt lygi. Dæmi: „Er rétt ókominn“  – þegar ...
„Snýst bara einfaldlega um rasisma“
📅 28.11.2026 👁️ 2
„Snýst bara einfaldlega um rasisma“
"Ég er Evrópubúi, Dani og Álaborgari. Og ég er heldur ekki fylgjandi mikillar umskiptingar landsmanna," (d: tilhænger af en stor befolkningsudskiftnin...
Fjárlagafrumvarpið: RÚV fær 330 milljónum meira, Landhelgisgæslan 466 milljónum minna
📅 28.11.2026 👁️ 3
Fjárlagafrumvarpið: RÚV fær 330 milljónum meira, Landhelgisgæslan 466 milljónum minna
Í frumvarpi til fjárlaga 2027 er gert ráð fyrir að framlag úr ríkissjóði til Ríkisútvarpsins hækki úr 6.735,0 milljónum króna í 7.065,0 milljónir, eða...
Two staff killed in Israeli strike on Gaza medical clinic, MSF says
📅 28.11.2026 👁️ 1
Two staff killed in Israeli strike on Gaza medical clinic, MSF says
The Israeli military says it targeted "Hamas terrorists" in the strike which has been condemned by the World Health Organization.
UK weather: Break from harsh cold as temperatures forecast to climb
📅 28.11.2026 👁️ 2
UK weather: Break from harsh cold as temperatures forecast to climb
Met Office data shows that November so far has been colder than normal, but temperatures are set to rise as December approaches.
Chapecoense: 10 years on - how team rebuilt after 2016 plane crash
📅 28.11.2026 👁️ 1
Chapecoense: 10 years on - how team rebuilt after 2016 plane crash
How a Brazilian football team rose again after a plane crash that killed most of their players and staff on the way to what should have been the bigge...
Bandaríski herinn staðfestir ekki tölvuárásir á kerfi hersins
📅 28.11.2026 👁️ 3
Bandaríski herinn staðfestir ekki tölvuárásir á kerfi hersins
Bandaríski herinn neitaði því óbeint í dag að hafa átt í vandræðum með tölvuöryggi. Þó var tekið fram að öryggisins vegna tjái varnarmálaráðuneytið si...
Fréttatía vikunnar: Þyrlur, páfinn og al­heimur - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 3
Fréttatía vikunnar: Þyrlur, páfinn og al­heimur - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Óttar Guðmundsson skrifar: Bókasýning/bókamarkaður í Hörpu
📅 28.11.2026 👁️ 2
Óttar Guðmundsson skrifar: Bókasýning/bókamarkaður í Hörpu
Mynd Um síðustu helgi var haldinn bókamarkaður/bókasýning í H
Pharmacies get new powers to swap prescriptions during shortages
📅 28.11.2026 👁️ 3
Pharmacies get new powers to swap prescriptions during shortages
If a medicine is out of stock, staff can offer the same drug in a different strength or form, like a capsule instead of a pill.
Tveir drepnir í árás á heilsugæslustöð á Gaza
📅 28.11.2026 👁️ 2
Tveir drepnir í árás á heilsugæslustöð á Gaza
Tveir starfsmenn á heilsugæslustöð á Gaza voru í dag drepnir í árás Ísraelshers. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum Læknar án landamæra. Ís...
Sveitarfélag notaði gervigreind til að afgreiða viðkvæmt mál
📅 28.11.2026 👁️ 5
Sveitarfélag notaði gervigreind til að afgreiða viðkvæmt mál
Sveitarfélagið Nyborg á Fjóni í Danmörku hefur gengist við því að hafa notað gervigreind til að vinna úr alvarlegri umkvörtun. Danska ríkisútvarpið gr...
Turkish officials 'destroyed' pro-opposition TV channel, owner tells BBC
📅 28.11.2026 👁️ 2
Turkish officials 'destroyed' pro-opposition TV channel, owner tells BBC
The headquarters of Halk TV were raided last month, the latest in a series of crackdowns on news sources deemed critical of the government.
Reyndi að smygla milljónavirði af skjaldbökum í gegnum Schiphol
📅 28.11.2026 👁️ 5
Reyndi að smygla milljónavirði af skjaldbökum í gegnum Schiphol
26 afar sjaldgæfar skjaldbökur fundust í innrituðum farangri ferðamanns sem var á leið í gegnum Schiphol-flugvöllinn í Amsterdam í dag. Maðurinn var á...
Carly Rae Jepsen: How GTA 6 gave her song Run Away With Me a second life
📅 28.11.2026 👁️ 0
Carly Rae Jepsen: How GTA 6 gave her song Run Away With Me a second life
The Call Me Maybe star returns to the UK Top 40 as her single Run Away With Me gets a GTA VI boost.
Fara fram á þungan dóm yfir manni sem seldi sjálfsvígspakka
📅 28.11.2026 👁️ 5
Fara fram á þungan dóm yfir manni sem seldi sjálfsvígspakka
Saksóknarar í Kanada fóru í gær fram á 25 ára fangelsisdóm yfir Kenneth Law, kanadískum manni með verkfræðimenntun sem starfaði sem matreiðslumaður. M...
Fara fram á þungan dóm yfir manni sem seldi aðstoð við sjálfsvíg
📅 28.11.2026 👁️ 0
Fara fram á þungan dóm yfir manni sem seldi aðstoð við sjálfsvíg
Saksóknarar í Kanada fóru í gær fram á 25 ára fangelsisdóm yfir Kenneth Law, kanadískum manni með verkfræðimenntun sem starfaði sem matreiðslumaður. M...
Schools to be told to set time aside for children to read for pleasure
📅 28.11.2026 👁️ 5
Schools to be told to set time aside for children to read for pleasure
The government says its new cirriculum hopes to reverse declining literacy rates and combat "mindless scrolling".
GTA 6: The AI race to clone the world's biggest video game for PC
📅 28.11.2026 👁️ 1
GTA 6: The AI race to clone the world's biggest video game for PC
With an official PC version potentially still months away, fans are getting impatient.
Poundland: 'I don't know what I'd do without it,' say shoppers as chain fights for survival
📅 28.11.2026 👁️ 2
Poundland: 'I don't know what I'd do without it,' say shoppers as chain fights for survival
The discount retailer has collapsed into administration after its US owners failed to secure a rescue deal.
A clinic is reassessing people with ADHD and autism diagnoses - but critics fear it could deepen stigma
📅 28.11.2026 👁️ 1
A clinic is reassessing people with ADHD and autism diagnoses - but critics fear it could deepen stigma
While many people find a diagnosis for ADHD or autism affirming, a government-funded clinic in Sweden is re-assessing people who feel it does not refl...
A clinic is offering to reassess ADHD and autism diagnoses - and hundreds of people are interested
📅 28.11.2026 👁️ 0
A clinic is offering to reassess ADHD and autism diagnoses - and hundreds of people are interested
While many people find a diagnosis for ADHD or autism affirming, a government-funded clinic in Sweden is re-assessing people who feel it does not refl...
Ók á staur - Vísir
📅 27.11.2026 👁️ 5
Ók á staur - Vísir
Jón Kristinn Valsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, greinir frá þessu í samtali við Vísi. Ekki sé talið að nokkurn hafi sakað alv...