Volodymyr Zelensky segir að Rússar séu að undirbúa stóra árás á Úkraínu og biður landsmenn að gæta fyllstu varúðar. Hann gagnrýnir jafnframt Donald Trump forseta Bandaríkjanna fyrir að setja ekki nægan þrýsting á Rússa um að semja um varanlegan frið við Úkraínu.
Zelensky flutti sjónvarpsávarp í gær þar sem hann sagði að unnið væri að því með evrópskum bandamönnum að fá nýja vopnasendingu til Úkraínu, aðallega til að vernda innviði gegn árásardrónum.
„Því miður höfum við upplýsingar um að Rússar undirbúi aðra stóra árás. Hlustið á aðvaranir vegna skotflauga næstu daga. Og látið Rússa vita að við endurbyggjum það sem við eigum og við svörum öllum árásum þeirra.“
Segir Trump ekki setja næga orku í Úkraínustríðið
Zelensky sagði í viðtali við breska ríkisútvarpið, BBC, að það væri erfitt að verjast árásum Rússa núna vegna skorts á loftvörnum. Miðausturlönd hafi fengið meiri hjálp frá Bandaríkjunum en Úkraína og hann telur Bandaríkjamenn ekki beita Rússa nægum þrýstingi. „Þeir verða að gera meira þegar Rússar eru þeir sem gera árásirnar. Þess vegna eru þeir að miðla málum. Þetta er land sem getur beitt þrýstingi af því að það hefur bæði vald og virðingu."
Þegar Zelensky er spurður hvað honum finnist um að Donald Trump kalli Vladimír Pútín forseta Rússlands vin sinn segir hann. „Það er skrítið. Hann [Pútín] er árásarmaðurinn. Og morðingi. Hann getur ekki verið vinur. Það er hreinlega ekki hægt. Þetta er svipað og ef einhver myndi segja í seinni heimsstyrjöldinni að Hitler væri góður vinur. Nei, hann er það ekki.“
Trump sagði í gærkvöld að hann hefði beðið Pútín um að breiða stríðið ekki frekar út.