Grænlenski fréttamiðilinn KNR greinir frá málinu. Talsmaður Icelandair staðfestir einnig slík fundahöld en félagið tilkynnti í byrjun sumars að áætlunarflugi milli Keflavíkur og Kulusuk yfir vetrarmánuði yrði hætt í haust. Þá segir KNR að fulltrúar grænlenskra stjórnvalda hafi einnig spurt hvort Icelandair hefði áhuga á að fljúga til Narsarsuaq.
„Við höfum átt fundi með grænlenskum stjórnvöldum um möguleika á Kulusuk en ekki hefur verið sérstök áhersla á aðra áfangastaði á þessum fundum,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, spurður um málið.
Formaður grænlensku landstjórnarinnar, Jens-Frederik Nielsen, lýsti í viðtali við Vísi í síðasta mánuði vonbrigðum með að Icelandair flygi ekki lengur til Kulusuk yfir vetrartímann. Hann sagði landstjórnina leita leiða til að tryggja flug að svæðinu á ný.
Guðni Sigurðsson sagði í viðtali við Vísi í sumar að reynst hefði krefjandi að halda flugleiðinni úti við núverandi rekstraraðstæður, meðal annars vegna mikilla hækkana á eldsneytisverði. Icelandair þyrfti að leggja áherslu á flugleiðir og -tímabil sem hægt væri að reka á viðskiptalega sjálfbærum grunni.
KNR segist hafa fengið það svar frá innviðaráðherranum Iddimanngiiu Jensen Bianco þann 27. október að verðhugmynd Icelandair fyrir flugið væri of dýr. Sami ráðherra sagðist hins vegar þremur dögum síðar, í öðru viðtali við KNR, ekki hafa séð neitt tilboð frá Icelandair en væri opinn fyrir því að fá slíkt tilboð.
KNR fékk aðgang að tölvupóstsamskiptum milli grænlenskra embættismanna og fulltrúa Icelandair. Samkvæmt þeim spurðu Grænlendingar um það í byrjun ágústmánaðar hvort Icelandair gæti lagt fram kostnaðaráætlun fyrir flugferðir frá október á þessu ári og fram í maí á því næsta. Ellefu dögum síðar hafi Icelandair sent kostnaðaráætlun.
Grænlenskir embættismenn hafi þá spurt hvort Icelandair gæti hugsað sér samning sem fæli í sér fjárhagslega ábyrgð af hálfu landsstjórnarinnar til að mæta hugsanlegu tapi á flugleiðinni. Icelandair hafi svarað því til að félagið hafi ekki gert slíka samninga áður, en væri opið fyrir því að skoða drög að slíku. Félagið væri enn bjartsýnt á að finna lausn.
Þann 19. ágúst hafi Icelandair sent drög að því hvernig hugsanlegur halli á flugleiðinni gæti verið reiknaður út. Þann 8. september hafi innviðaráðherra Grænlands verið á ferðalagi á Íslandi og heimsótt skrifstofur Icelandair. Þremur dögum síðar hafi Icelandair þakkað fyrir góðan fund. Frá og með 27. október hafi engin frekari tölvupóstsamskipti átt sér stað milli grænlenska stjórnarráðsins og Icelandair.
Hér má sjá lendingu Icelandair-vélar í Kulusuk í september í fyrra: