Þrír skipverjar Jökuls ÞH299 fórust þegar skipið sökk í gær um sextíu sjómílur austan af landinu. Fjórtán skipverjum var bjargað. Blásið var til blaðamannafundar í morgun vegna sjóslyssins, sem er eitt það mannskæðasta hér á landi í fleiri áratugi.
Þar var Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar meðal annars spurður að því hvort áhöfn TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar, hefði lagt sig í hættu við björgunaraðgerðir og hvort að vikið hafi verið frá öryggisverklagi. Hann sagði það liggja fyrir.
Georg sagðist hafa átt samtal við flugstjóra þyrlunnar um þetta. Reglan væri að ekki væri lengra farið en tuttugu sjómílur frá landi nema það sé „bakköpp“. Jökull sökk um sextíu sjómílur austur af landinu. Segja mætti að flugstjórinn hafi þverbrotið allar reglur og það ætti að áminna hann. Aftur á móti hefðu sautján menn verið í sjónum og allir í þyrlunni hefðu verið sammála um að fara og að það hefði ekki verið neitt val þar. Ekki væri gott að setja áhöfnina í þessar aðstæður. Þá nefndi hann að þyrlur Landhelgisgæslunnar væru betri nú en þær voru þegar reglurnar voru settar.