Skipið hét Jökull ÞH og var gert út frá Húsavík en var statt um hundrað kílómetra frá landi þegar skipstjóri þess sendi neyðarboð.
Séra Magnús Gunnarsson, prestur við Húsavíkurkirkju, segir að til stendur að opna kirkjuna og verður hún opin í allan dag fyrir þá sem eiga um sárt að binda. Sömuleiðis stendur til að halda bænastund verður klukkan fimm.
Magnús segir að allir séu velkomnir í kirkjuna.