Vel gekk að hífa sjúklinginn um borð í þyrluna, að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. Hann gat ekki veitt upplýsingar um eðli veikindanna en sagði að talin hafi verið þörf á því að koma viðkomandi á sjúkrahús á Íslandi.
Landhelgisgæslan deildi eftirfarandi myndskeiði af aðgerðinni.
Ásgeir sagði fyrr í kvöld að flugið væri krefjandi í ljósi þess að skipið væri statt langt frá landi. „Þetta er ansi langt flug og langur flutningur, þannig TF-Sif var líka kölluð út, eins og alltaf er gert þegar þarf að fara svona djúpt út. Hún annast fjarskipti og hjálpar við að finna heppilegustu flugleið.“
Að sögn Ásgeirs var skemmtiferðaskipið um miðja vegu milli Íslands og Grænlands, í norðvesturátt frá Vestfjörðum.