Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar en leiða má líkur á því að um sé að ræða sama atvik og fréttastofa greindi frá í gærkvöldi, þar sem vitni gengu fram á blóðug föt og blóðslettur á gangstétt við Grettisgötu.
Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, staðfesti við fréttastofu að sérsveitin hefði verið kölluð til aðstoðar en verið snúið við.
Í yfirlitinu segir að greinagóð lýsing hafi fylgt tilkynningunni og að lögregla hafi haft upp á árásarmanninum stuttu síðar. Sá var handtekinn og vistaður í fangageymslu.
Þolandinn var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar.
Málið er í rannsókn.