Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á flugvelli klukkan 22:21 og var sjúklingur fluttur á sjúkrahús í sjúkrabíl. Þetta staðfestir vaktstjóri hjá Landhelgisgæslunni í samtali við fréttastofu.
Þyrla og eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-Gró og TF-Sif, voru kölluð út í kvöld vegna veikinda farþega um borð í skemmtiferðaskipi um 150 sjómílur norðvestur af Vestfjörðum, milli Íslands og Grænlands.
Skipið var miðja vegu milli landanna þegar óskað var eftir aðstoð. Þyrlan fór frá Reykjavík á áttunda tímanum og hífði eldri farþega um borð áður en haldið var til baka.