Undirritunin fór fram klukkan 13:15 í matstofu Jónsar á Heilsustofnun. Um 1.350 einstaklingar sækja endurhæfingu á stofnunni árlega en með nýja samningnum er verið að tryggja reksturinn til ársloka 2029.
Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra er mjög ánægð með nýja samninginn.
„Þetta er samningur þar sem við erum að bæta í um 230 milljónum í þá mikilvægu starfsemi sem hér fyrir fólk sem er með geð- og taugasjúkdóma, hjartasjúkdóma, stoðkerfisvanda, offitu og krabbamein svo dæmi séu nefnd,” segir Alma og bætir við.
„Þannig að þetta er gríðarlega mikilvæg starfsemi og auðvitað er Heilsustofnun og Náttúrulækningafélagið löngu búin að sanna gildi sitt í forvörnum og endurhæfingu".
Sjálf segist Alma ekki hafa nýtt sér þjónustu Heilsustofnunar en hún segist vera meira en til í það.
„Ég myndi alveg vilja koma hingað og eiga smá tíma í endurheimt,” segir hún hlæjandi.
Döbb: En hvað þýðir nýi samningurinn fyrir starfsemina í Hveragerði? Þórir Haraldsson er forstjóri Heilsustofnunar.
„Þetta þýðir númer eitt, tvö og þrjú að við erum komin með rekstraröryggi fyrir þjónustunni og aukin framlög frá Sjúkratryggingum. Það er auðvitað enn á brattann að sækja í þeim efnum hjá okkur, við erum ekki komin í mark, en við erum mjög þakklát fyrir þá viðurkenningu sem birtist í þessum samningi og þeim auknu fjármunum sem koma til okkar,” segir Þórir.