Þetta kom fram á blaðamannafundi forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og forstjóra Landhelgisgæslunnar í morgun. Þar kom fram að mennirnir hafi myndað keðju eftir að þeir lentu í sjónum í flotgöllum sínum.
„Mig langar að segja ykkur frá samtölum sem við áttum við þá sem voru í sjónum. Þetta var ótrúlegt, átakanlegt oft á tíðum. Við höfum ekki upplifað það fyrr að geta verið í beinu sambandi við þá sem eru að berjast fyrir lífi sínu í sjó í kolniðamyrkri,“ sagði Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar.
„Varðmenn Landhelgisgæslunnar hreinlega töluðu líf í þessa menn. Voru blíð og góð og komu með ábendingar um það hvernig menn ættu að bera sig að til að lifa þetta af. Sífellt að segja þeim bjartsýnar fréttir um komu þyrlu, komu skipa og ég held að þetta hafi skipt verulegu máli. Þetta var allavega ótrúleg stund að vera þarna.“
Telur þetta haft úrslitaáhrif
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra var einnig stödd í aðgerðarstjórn Landhelgisgæslunnar í gærkvöldi. Hún varð vitni að samskiptunum.
„Maður hlustaði á þau, samskiptin innan úr stjórnstöðinna við menn sem voru ofan í sjónum, hugreystingarorð, verið að nefna hvað væri langt í þyrluna, það var bókstaflega verið að tala von og líf í þessa menn og ég er sannfærð um að þetta hafði úrslitaáhrif, viðhalda baráttuþreki með þessu, einn mannanna var með neyðartalstöð og gat meðtekið skilaboð og svo heyrði maður hvernig tónninn breyttist þegar menn átta sig á því að flugvél og þyrla, að björgin er komin.“