Logi Karlsson hefur verið ráðinn forstjóri Símans ehf. María Björk Einarsdóttir hefur stýrt Símanum samhliða starfi forstjóra Ása frá því að fjarskiptareksturinn var færður í sérstakt dótturfélag í júlí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Þá segir að upplýsingatæknimál Ása flytjist á önnur svið og framkvæmdastjórum fækki um einn. Í tilkynningunni er haft eftir Loga að með breyttu skipulagi geti Síminn einbeitt sér enn betur að kjarnastarfsemi sinni
„[A]ð veita framúrskarandi fjarskiptaþjónustu um land allt á öruggum vestrænum kerfum.“
Logi tekur við starfinu 1. desember. Áður starfaði Logi hjá Íslandsbanka frá 2016, síðast sem forstöðumaður nýsköpunar og stafrænnar þróunar.
Hann er með doktorspróf í markaðsfræði og MBA-gráðu frá Sydney Business School og BA-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands.