Ekki er vitað hver stóð að baki umfangsmikilli tölvuárás á upplýsingainnviði í gær. Forstjóri CERT-IS segir að fleiri en einn geti komið til greina. Nýr veruleiki blasi við í tölvuárásum, þar sem gervigreind er nýtt til að leita veikleika í kerfum og valda usla.
Almenningur þurfi ekki að gera ráðstafanir á þessum tímapunkti þar sem árásirnar snúi fyrst og fremst að rekstraraðilum upplýsingakerfa.
Staðan nokkuð óbreytt
Netárás var gerð á hluta tölvukerfa Reykjavíkurborgar í gær. Fleiri hafa tilkynnt um árásir, þar á meðal Bláa lónið.
Almannavarnanadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS virkjuðu viðbragðsáætlun almannavarna um verndun ómissandi upplýsingainnviða vegna fjölgunar gervigreindarárása á tölvukerfi.
Árásaraðilar nýttu sér skýjaþjónustuna Microsoft Azure.
Magni Reynir Sigurðsson, forstjóri CERT-IS, segir stöðuna nokkuð óbreytta frá því í gær. Unnið hafi verið að greiningu langt fram á kvöld. Bæði á atvikum sem voru tilkynnt í gær en einnig í samhæfingu við sinn þjónustuhóp, sem eru mikilvægir innviðir og stofnanir landsins.
„Það sem við erum að sjá eru töluverðar þreifingar á kerfum, engin staðfest innbrot en við sjáum árásaraðila þreifa og skoða mögulegar leiðir inn í kerfi, sem var líka ástæða fyrir því að við ákváðum að lyfta þessu viðbúnaðarstigi í gær.“
Viðbragðsáætlunin er enn í gildi og Magni býst við því að það verði eitthvað áfram. „Það er í rauninni bara metið núna með almannavarnadeild ríkislögreglustjóra jafnt og þétt næstu klukkustundir og daga en við erum enn þá á þessu óvissustigi.“
Er vitað hver stóð að baki þessari árás í gær?
„Nei, það hefur ekki verið greint. Það er bara þannig að þegar árásir eru framkvæmdar með gervigreindartólum og árásaraðilar skýla sér á bak við sýndarnet þá verður það gríðarlega erfitt.“
Magni segir þessi tól á færi fleiri aðila í dag. „Og í rauninni getur hver sem er nýtt þessi tól sem gerir okkar vinnu við að komast að því hver er þarna að baki mun erfiðari.“
CERT-IS vinni út frá þeim upplýsingum og vísbendingum sem sveitin hafi. „En ég myndi segja að það gætu komið fleiri en einn til greina í þeim málum.“
Þarf almenningur að gera ráðstafanir í kjölfarið á þessu atviki í gær?
„Nei, ég myndi ekki segja það á þessari stundu. Þetta snýr fyrst og fremst að rekstraraðilum upplýsingakerfa og að verja sín kerfi. Þess vegna erum við að lyfta þessu viðbúnaðarstigi upp, að aðilar sem reka innviðina og kerfin okkar séu á tánum. Þannig að þetta snýr ekki beint að almenningi.“
Stór atvik geti leitt til þess að útfall verði á þjónustu sem geti haft áhrif á almenning. „En eins og staðan er núna eru þau minniháttar.“
Magni segir að töluverð aukning sé í sambærilegum árásum um allan heim, þar sem gervigreind er nýtt til að leita veikleika í kerfum, fara inn í þau og valda usla.
„Eitthvað sem við sáum áður taka vikur tekur núna bara nokkrar klukkustundir. Þess vegna viljum við líka að aðilar séu mun meira vakandi yfir kerfunum sínum núna heldur en þekktist. En jú, þetta er nýr veruleiki sem við erum að upplifa akkúrat núna.“