Slysavarnafélagið Landsbjörg segir mikilvægt að hlúa hvert að öðru og standa með þeim sem eiga um sárt að binda. Í færslu sem félagið birtir í nafni allra félaga sinnar er skipverja þriggja sem létust þegar Jökull ÞH299 sökk minnst og þeim sem harmleikurinn snerti sendar hlýustu kveðjur. „Félagar Slysavarnafélagsins Landsbjargar senda fjölskyldum og ástvinum þeirra sem fórust með Jökli ÞH innilegustu samúðarkveðjur. Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi. Hugur okkar er hjá ykkur og öllum sem nú syrgja.
Slysavarnafélagið Landsbjörg: „Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi“