Fréttastofa RÚV verður með aukafréttatíma í sjónvarpi í hádeginu vegna sjóslyssins austur af landinu í gær. Fréttatíminn hefst klukkan 12.
Blaðamannafundi forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og forstjóra Landhelgisgæslunnar er lokið. Meðal þess sem þar kom fram er að:
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði að ótrúlegt björgunarafrek og hetjudáð hefði verið unnið við mjög erfið skilyrði. Hún sagði að í upphafi kvölds hefði ekki legið ljóst fyrir að neitt myndi lifa af. Hún harmaði að þrír hefðu látið lífið en fagnaði því að tekist hefði að bjarga 14 skipverjum. Hún sagði bæði áhöfn þyrlunnar og skipverjana sjálfa hafa unnið þrekvirki.
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði að reglur um flug þyrla út á sjó hefðu verið þverbrotnar. Þær mega ekki fara lengra frá landi en 20 mílur nema tvær þyrlur séu saman í för. Í gærkvöld flaug ein þyrla 60 mílur á haf út. Hann hrósaði þyrluáhöfninni og öðrum sem komu að björguninni mjög. Hann lauk líka lofsyrði á sjómennina sem lentu í sjónum og sýndu mikið baráttuþrek.
Ekki kom fram hvers vegna skipið sökk. Georg greindi frá því að annar björgunarbáturinn hefði verið fastur við skipið og hinn rekið á brott. Því höfðu sjómennirnir aðeins björgunargallana og hvor annan til að bjarga sér uns þyrlan mætti og hífði þá upp.
Forsætisráðherra og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra sögðu að unnið hefði verið að því á kjörtímabilinu að kanna möguleika á að efla viðbúnað Landhelgisgæslunnar. Þar á meðal er að fá fjórðu þyrluna. Þær sögðu að þeirri vinnu yrði flýtt og stefnt að því að klára hana á kjörtímabilinu.
Þau lýstu því hvernig hefði verið að fylgjast með samskiptum starfsmanna Gæslunnar og sjómannanna í háskanum. Starfsmennirnir hefðu upplýst sjómennina um stöðuna og hughreyst þá. Sjómennirnir hefðu getað lýst stöðunni og veitt upplýsingar. Þannig hefðu starfsmenn Gæslunnar talið kjark í sjómennina og fólk heyrt hvernig birti til yfir sjómönnunum þegar þyrlan kom.
„Það virðist vera hluti af starfslýsingu þeirra sem starfa við öryggismál á Íslandi hvort sem það er landhelgisgæsla, lögregla, slökkvilið eða aðrir að sýna fulla meðvirkni með því getu og áhugaleysi sem þessum málum hefur verið sýnt á síðustu áratugum. Það má ekki upplýsa hversu ömurleg staðan er á þessum málum á Íslandi,“ þetta skrifar Sigurður Ásgeirsson þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni á Facebook eftir gærkvöldið.
Húsavíkurkirkja er opin þeim sem þangað vilja leita og bænastund verður í kirkjunni klukkan 17, segir séra Magnús Gunnarsson, prestur í Húsavíkurkirkju.
Siguróli Sigurðsson fréttamaður er á Egilsstöðum. Þar er hluti áhafnarinnar, þeir sem ekki voru fluttir til Reykjavíkur í nótt.
„Það var eiginlega ótrúlegt að fylgjast með aðgerðum hér í gærkvöldi. Það var mjög fjölmennt teymi viðbragðsaðila sem vann sem einn maður á svæðinu,“ segir Siguróli.
Minna en 30 mínútur tók að flytja alla áhöfnina frá flugvellinum á heilsugæsluna.
Aðgerðir gengu eins og best var á kosið á heilsugæslunni á Egilsstöðum í nótt. Aðgerðarstjórn var að störfum til að verða þrjú í nótt. Alvarleiki málsins og sorgin er áþreifanleg á Egilsstöðum, að sögn Siguróla.
Við höfum ekki upplifað það áður að geta verið í beinu sambandi við þá sem eru í ísköldum sjó að berjast fyrir lífi sínu, sagði Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.
Hluti skipverja hlekkjaði sig saman og var með neyðartalstöð. Þannig gátu þeir verið í sambandi við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. Það gerði Gæslunni kleift að upplýsa skipverja í sjávarháska um að björgin væri á leiðinni.
Starfsfólk Landhelgisgæslunnar hefði getað hughreyst skipverjana og skipverjarnir veitt upplýsingar um sína stöðu.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir fylgdist með því í gærkvöld þegar starfsmenn Landhelgisgæslunnar ræddu við fólkið í sjávarháska. Þar hefðu starfsmenn upplýst fólkið um stöðuna og talað í það von og þrótt.
„Það tókst að viðhalda baráttuþreki með þessu.“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði að jafn stór slys og í gær snertu alla landsmenn. Hún sagði eðlilegt að fólk vildi fá sem mestar upplýsingar sem fyrst en að einnig þyrfti að hafa í huga að skipverjar ættu fjölskyldur og ástvini.
Hún sagðist telja að upplýsingamiðlun hefði verið eins og best væri á kosið. Hún sagði ríkari kröfu um upplýsingagjöf en áður og að það gerði kröfur til þeirra sem stæðu í stafni.
Hún sagði að ekki hefði þótt eðlilegt að upplýsa um það um miðja nótt að greina frá andlátum áður en búið væri að upplýsa aðstandendur.
Forsætisráðherra var spurð út í hagræðingarkröfu á hendur Landhelgisgæslunni. Hún sagði að bætt hefði verið í framlög á síðustu árum, um 35% að raunvirði. Hún sagði stjórnina þó vita fullvel að mikil innviðaskuld væri hjá stofnunum eins og Landhelgisgæslunni. Hún sagði þetta ekki nýtilkomið og að stjórnin hefði vitað að það væri áskorun að takast á við rekstur Landhelgisgæslunnar.
Hún sagði björgunarafrekið í gær sýna að starfsfólk Landhelgisgæslunnar kynni mjög vel til verka og fullnýtti þau tæki sem það hefði til umráða.
Hún sagði ríkisstjórnina hafa skoðað að fá eina þyrlu til viðbótar.
Dómsmálaráðherra sagði að allir vildu leggja meira til. Þetta væri dýrt en fjárfestingin hefði verið aukin.
Forstjóri Landhelgisgæslunnar sagði að stofnunin væri mjög vel tækjum búin og hefði aldrei verið jafn vel búin. Hann vísaði til nýrra skipa, öflugrar flugvélar og þyrla. „Mannskapurinn er úrvalslið. Eins og sýndi sig í gær er þetta fólk fært um að gera ótrúlegustu hluti og ég er mjög stoltur af þessu fólki, öllu saman.“
Öll þrjú lýstu vilja til að auka viðbúnað Landhelgisgæslunnar víða um land, bæði með fjölda þeirra tækja sem hún hefur yfir að ráða og staðsetningu þeirra.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði ríkisstjórnina stefna að því að ljúka þessum málum fyrir lok kjörtímabilsins. Hún hafði áður rætt um að koma upp þyrlu úti á landi, líklega á Norðurlandi.
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði að Gæslan vildi fá fjórðu þyrluna. Aðspurður um stöðuna ef slys yrði í skemmtiferðaskipi sagði hann að tvær, þrjár eða fjórar þyrlur dygðu skammt.
„Ég hitti sex þeirra í nótt og þeir báru sig vel. Þetta er hraust fólk. Auðvitað var þetta átakanleg sjón að sjá þá koma með teppi um axlirnar,“ sagði Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, um það hvernig sjómennirnir hefðu það.
Hann sagði íslenska sjómenn gerða úr sérstaklega hörðu efni.
Það er erfitt að treysta þyrlum og þær þurfa mikið viðhald, sagði Georg Kr. Lárusson um ástæður þess að aðeins ein þyrla var til taks í gær.
Hann sagði að eina leiðin til að tryggja að nægar þyrlur væru til taks væri að hafa sem flestar þyrlur til umráða. Hann sagði að níu viðhaldstíma þyrfti fyrir hvern flugtíma. Fjórar þyrlur þyrfti til að hafa tvær til taks hverju sinni, og væri þá samt bara 90% öruggt.
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði að reglur Gæslunnar segi að ein þyrla megi ekki fara lengra en 20 mílur út á sjó. Hann ræddi við flugstjórann áður en lagt var í hann.
„Það má segja að hann hafi þverþrotið allar reglur og eigi kannski að áminna hann en þarna voru 17 menn í sjónum. Þeir ræddu þetta sín í milli áhafnarmeðlimir og voru allir sammála um að fara. Var raunar ekkert val um það.“
Hann sagði að það væri ekki gott að setja áhafnir í þessa stöðu. Hann sagði þyrlurnar þó miklu betri en þegar reglurnar voru settar. Flugstjórinn hefði þó sagt sér að það hefði farið um sig þegar hann var kominn langt út á sjó í 50 hnúta mótvindi.
Það gefur augaleið að það er styttri loftlína frá Akureyri en Reykjavík þannig að það hefði getað haft einhver áhrif á viðbragðstímann, sagði Georg Kr. Lárusson.
Kristrún Frostadóttir sagði að ríkisstjórnin hefði haft það til ítarlegrar skoðunar frá upphafi þessa kjörtímabils hvort bæta ætti við fjórðu björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar. Hún sagði þetta sýna að mikilvægt væri að hafa björgunarviðbúnað víðar á landinu. Hún sagði að þetta hefði verið á dagskrá og að vinnunni yrði flýtt eins og kostur er.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir sagði að kallað hefði verið eftir því um áratugi að viðbúnaður væri meiri. Hún tók undir orð forsætisráðherra um að meira viðbragð væri alltaf betra. Hún sagði að þyrlur væru ekki hilluvara og það gæti verið margra ára fasi að fá slíka.
Á þessu myndskeiði má sjá sjómenn Jökuls ÞH ganga úr þyrlu Landhelgisgæslunnar á Egilsstaðaflugvelli seint í gærkvöldi. Þeir voru í fjóra tíma í sjónum áður en þeim var bjargað. Sjómennirnir voru klæddir flotgöllum, sem Georg sagði að gætu haldið mönnum á lífi í sjónum í allt að fimm til sex klukkustundir.
Samkvæmt frásögn skipverja var annar björgunarbáturinn fastur í skipinu og hinn rak frá skipverjum, hefur Georg Kr. Lárusson eftir áhöfn Jökuls ÞH.
Hann segir að rannsóknarnefnd sjóslysa rannsaki hvað gerðist.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði að allir hefðu óskað þess að 17 skipverjar hefðu snúið aftur heim.
„Staðan var þó sú í upphafi kvölds að það lá ekki fyrir hvort neinn þeirra myndi lifa þetta af. Það er augljóst að um ótrúlegt björgunarafrek er að ræða við ótrúlega erfið skilyrði á sama tíma og við hörmum að þrír aðilar hafi látið lífið.“
Þessir menn báru með sér að vera eitilharðir enda voru þeir í fjórar klukkustundir í sjónum, sem er mjög langur tími, sagði Georg Kr. Lárusson. Hann sagði talið að menn gætu lifað fimm til sex klukkustundir í sjó í svona göllum. Því hefði verið komið að mörkum með mennina.
Hann sagði mikilvægt að hafa notið aðstoðar skipverja á nálægum skipum. Aðrar þjóðir hefðu ekki getað veitt aðstoð í gærkvöld en Norðmenn getað sent þyrlu sem kæmi síðla nætur.
Tveir sigmenn voru í þyrlunni.
Varðskipið Þór heldur áfram för sinni austur. Brak er á vettvangi sem þarf að ná upp.
Áhöfn þyrlunnar þurfti að taka margar erfiðara ákvarðanir, sagði Georg Kr. Lárusson. Það hefði verið ljóst að 17 skipverjar væru mikil byrði fyrir vélina. Því hefði þyrlan flogið til hliðar í 15 mínútur til að brenna eldsneyti. Það gerði að verkum að hægt var að ná síðustu tveimur mönnunum um borð.
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að það hafi verið magnað að sjá viðbrögð sjómanna þegar ljóst var hversu mikil hættan var. Þeir yfirgáfu skipið.
Flotgallarnir sem mennirnir klæddust eru með búnað sem sendir út merki þegar þeir lenda í sjó.
„Þarna gátum við séð þá einn af öðrum stökkva í sjóinn.“
Þyrla Landhelgisgæslunnar þurfti að fljúga suður fyrir land þar sem ekki viðraði til að fara yfir hálendið. Hún lenti á Höfn á Hornafirði til að taka eldsneyti. Þar var allt tekið úr þyrlunni sem hægt var til að létta hana eins og hægt væri fyrir björgunarleiðangurinn.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra byrjaði á því að votta aðstandendum hinna látnu samúð sína. Hún sagði hug sinn líka hjá þeim sem lifðu af og fjölskyldum þeirra.
Hún sagði það hafa verið magnaða upplifun að vera í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í gærkvöld. Þar hefði hún heyrt samskipti við sjómennina sem biðu björgunar og orðið vitni að mikilli fagmennsku.
Hún þakkaði Landhelgisgæslunni fyrir afrekið við björgunina í gær, sérstaklega áhöfnunum á TF-GRÓ og TF-SIF en líka björgunarsveitum, skipverjum á öðrum skipum og öllum þeim sem komu að björguninni.
Þorbjörg Sigríður hrósaði áhöfninni sérstaklega fyrir viðbrögð sín.
„Þarna var sannanlega unnin hetjudáð,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra um björgun skipverja á Jökli. Hún sagði að skipverjar á Jökli hefðu líka unnið kraftaverk þegar skipið sökk, þau hefðu staðið saman og ekki skilið neinn eftir.
Þetta er eitt af mannskæðustu slysum á sjó við Ísland á síðustu áratugum, sagði Kristrún. Hún sagði að enn verr hefði getað farið ef áhöfnin hefði ekki brugðist svo vel við í erfiðum aðstæðum og ef viðbragðsaðilar hefðu ekki ákveðið að hætta eigin lífi til að bjarga skipverjum.
Hún þakkaði öllum þeim sem komu að björguninni og hafa hlúð að skipverjum.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur blaðamannafundinn. Hún segir að þetta hafi verið hörmulegt slys en líka mikið björgunarafrek. Þarna hafi 14 verið bjargað eftir fjórar klukkustundir í úfnum sjó. Hún segir þyngra en tárum taki að þrír hafi farist.
Á sorgarstund sem þessari stöndum við öll saman, sagði forsætisráðherra. Hún sagði að áhöfn þyrlunnar yrði aldrei fullþakkað fyrir mannbjörgunina. Hún sagði hug sinn og landsmanna hjá aðstandendum þeirra sem létust.
Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, býður þjóðinni að biðja saman fyrir áhöfninni á Jökli ÞH og ástvinum þeirra. Bænin sem biskup deilir á Facebook er svohljóðandi:
Guð vonarinnar, við biðjum fyrir áhöfninni á Jökli ÞH. Þeim sem lifðu af og þeim sem létust. Við þökkum fyrir styrk þeirra og þrek að þola þessa raun.
Við biðjum fyrir ástvinum þeirra sem beðið hafa milli vonar og ótta vítt og breitt um landið. Styrk þau sem nú hafa orðið fyrir óbærilegri sorg og umvef þau kærleika þínum.
Guð ljóssins, við þökkum fyrir allt það hugrakka fólk sem tók þátt í björgunaraðgerðunum. Við þökkum fyrir kjark þeirra, seiglu og óeigingjarna þjónustu við erfiðar aðstæður.
Guð lífsins, við biðjum fyrir heilbrigðisstarfsfólki og öðrum sem nú munu annast skipsverjana og styðja ástvini þeirra á komandi dögum, vikum og mánuðum.
Guð, umvef þau sem nú syrgja og sakna. Gef þeim styrk og huggun og lát þau finna að þjóðin öll stendur með þeim í sorginni.
Guð, þjóðin okkar hefur sameinast í bæn. Við erum þakklát fyrir að búa í samfélagi sem stendur saman þegar á bjátar.
Í Jesú nafni. Amen.
Dálítil töf hefur orðið á því að blaðamannafundurinn hæfist. Þess er skammt að bíða.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra taka til máls á fundinum.
Á þessu myndskeiði má sjá liðsmenn Landhelgisgæslunnar aðstoða skipverja í björgunargöllum úr þyrlunni á Egilsstaðaflugvelli í nótt. Þar beið þeirra röð sjúkrabíla.
Þetta hefur komið fram í morgun:
Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH sökk 60 sjómílur austur af landinu í gær. 14 úr áhöfn var bjargað á lífi.
Blaðamannafundur hefst klukkan níu. Þar verða veittar upplýsingar um slysið og björgunina. Einnig verður spurningum fjölmiðla svarað.
Halla Tómasdóttir forseti sendi fjölskyldum og ástvinum sjómannanna þriggja sem létust í gær innilegustu samúðarkveðjur.
„Þakklæti fyrir þau mannslíf sem tekist hefur að bjarga blandast djúpri sorg yfir þeim sem við misstum. Hugur okkar er hjá öllum sem nú eiga um sárt að binda.
Við færum Landhelgisgæslunni, björgunarsveitum, áhöfnum Skinneyjar, Svans og Harðbaks, heilbrigðisstarfsfólki og öllu því góða og hugrakka fólki sem kom að björgunaraðgerðum innilegar þakkir fyrir það þrekvirki sem unnið var við afar erfiðar aðstæður.
Á sorgarstund sem þessari stöndum við saman sem þjóð. Megi samheldni og kærleikur veita okkur styrk.“
Fréttastofan verður með aukafréttatíma vegna blaðamannafundar sem haldinn verður um sjóslysið.
Fréttatíminn hefst klukkan 8:57. Blaðamannafundurinn hefst klukkan 9:00.
Hægt verður að horfa á aukafréttatímann í sjónvarpi og hér á vefnum. Útsendinguna er að finna efst í þessari fréttavakt. Ef þú sérð hana ekki ráðleggjum við þér að endurhlaða síðuna og þá birtist spilari RÚV. Blaðamannafundurinn verður líka sendur út á Rás 1 og Rás 2.
Fjölmennur hópur viðbragðsaðila var tilbúinn á Egilsstaðaflugvelli þegar þyrla Landhelgisgæslunnar lenti með skipverjana í gærkvöld.
„Viðbúnaðurinn hérna var gríðarlega mikill, þegar ég og Kristófer [Óli Birkisson] tökumaður mættum á staðinn var löng röð viðbragðsaðila á flugvellinum á Egilsstöðum að búa sig undir komu þyrlunnar,“ sagði Siguróli Sigurðsson fréttamaður í morgunfréttum.
„Þarna voru meðal annars fjórir sjúkrabílar og mjög mikið af björgunarsveitarfólki og öðrum viðbragðsaðilum. Í húsakynnum flugvallarins voru sjúkraflutningamenn og teymi af læknum og hjúkrunarfræðingum að gera allt tilbúið.“
Þyrlan lenti klukkan 23:40 og þá fór allt viðbragð á fullt á flugvellinum.
„Það tók ótrúlega skamman tíma því að um 30 mínútum síðar var búið að flytja alla burt af flugvellinum á heilsugæsluna hér á Egilsstöðum. Það var eiginlega ótrúlegt að fylgjast með því hvernig þetta gekk allt og hvað þetta teymi sem var hérna gerði það fumlaust.“
Jökull ÞH var að veiðum 60 sjómílur austur af landinu þegar neyðarástand skapaðist á sjötta tímanum í gær. Skipstjórinn sendi út neyðarboð og skömmu síðar yfirgaf áhöfnin skipið.
Allar bjargir voru virkjaðar, flugvél og þyrla Landhelgisgæslunnar, björgunarskip og skip í grenndinni.
Í fréttinni hér fyrir neðan má sjá það sem við vitum á þessari stundu. Viðbúið er að meira skýrist á blaðamannafundi klukkan níu sem verður í beinni útsendingu á RÚV.
Við vorum með fréttavakt í gærkvöld. Hér má sjá það sem þá kom fram.
Boðað hefur verið til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum í Reykjavík klukkan níu. Þar verða veittar frekari upplýsingar og spurningum fjölmiðla svarað.
RÚV verður með aukafréttatíma þar sem sent verður beint út frá fundinum.
Landhelgisgæslan sendi frá sér tilkynningu klukkan 7:36 í morgun þar sem greint var frá afdrifum skipverja. Hún er svohljóðandi:
Tilkynning frá Landhelgisgæslu Íslands: Þrír fórust og fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar fiskiskip sökk
Þrír fórust og fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar fiskiskip sökk um 60 sjómílur austur af landinu í gær. Björgunaraðgerðir á slysstað voru umfangsmiklar. Auk þyrlu Landhelgisgæslunnar tóku þátt í aðgerðunum áhöfnin á eftirlitsflugvélinni TF-SIF, sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fjöldi fiskiskipa.
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Egilsstaðaflugvelli laust fyrir miðnætti og þeir sem á þurftu að halda fengu aðhlynningu á heilsugæslunni á Egilsstöðum.
Aðgerðir þyrlusveitarinnar á vettvangi stóðu yfir í um tvær klukkustundir við mjög krefjandi aðstæður og voru varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í stöðugum samskiptum við áhöfn þyrlunnar.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarboð frá skipstjóra fiskiskipsins laust eftir klukkan 17:00 um að leki væri kominn að skipinu. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar báðu áhöfn skipsins um að klæðast björgunargöllum. Skömmu síðar lýsti skipstjórinn yfir neyðarástandi og upplýsti stjórnstöðina að skipverjar væru að yfirgefa skipið.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út ásamt áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra. Að auki voru öll skip úti fyrir Austurlandi beðin um að halda á vettvang.
Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð sem og aðgerðarstjórnir á Norðurlandi eystra, Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.
Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar kom á vettvang laust eftir 20:00 og klukkan 21:15 kom þyrla Landhelgisgæslunnar á staðinn sem og fiskiskip sem beðin voru að halda á vettvang.
Hluti áhafnar fiskiskipsins var fluttur til Reykjavíkur í nótt með eftirlitsflugvélinni TF-SIF og flugvél Norlandair.
Ákveðið hefur verið að boða til blaðamannafundar klukkan 9 í ráðherrabústaðnum til að veita frekari upplýsingar og svara spurningum fjölmiðla.
Við hefjum hér nýja fréttavakt þar sem við fjöllum um sjóslysið í gær þar sem þrír skipverjar létust þegar netaskipið Jökull ÞH sökk 60 sjómílur austur af landinu. 14 var bjargað á lífi.
Skipstjórinn sendi út neyðarkall á sjötta tímanum í gær. Skömmu síðar fóru skipverjar frá borði og skipið sökk. Allar tiltækar hjálpir voru virkjaðar, flugvél og þyrla Landhelgisgæslunnar flugu austur, þrjú björgunarskip sigldu úr höfn og skipum í grennd var stefnt að slysstað.