Almannavarnir ríkislögreglustjóra hafa í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra aflýst óvissustigi vegna landriss í Öskju. Fréttir bárust af því fyrir helgi að samkvæmt nýjustu mælingum væri landris hætt og merki um að landið væri tekið að síga.
Árið 2021 var óvissustig sett á sökum landriss við Öskju og voru merki um óróa á svæðinu. Frá því að landrisið hófst hefur landið risið um 60 sentímetra. Askja gaus síðast árið 1961.
Í tilkynningu frá almannavörnum segir:
„Nýjustu mælingar benda til þess að landrisi í Öskju, sem hófst árið 2021, sé nú lokið. Fyrstu merki eru um að land á svæðinu sé farið að síga á ný og bæði gasmælingar og skjálftavirkni benda til eðlilegs ástands.
Niðurstöðurnar byggja á vettvangsvinnu vísindamanna Veðurstofu Íslands og Háskólans í Gautaborg sem lauk í síðustu viku. Þar voru framkvæmdar mælingar á aflögun lands og gasi á Öskjusvæðinu. Mælingarnar sýna að landrisið hefur stöðvast og smávægilegt landsig mælist nú á svæðinu.
Jafnframt hafa engar breytingar mælst á samsetningu gass í eystri hluta Öskju miðað við fyrri ár og skjálftavirkni er lítil og í samræmi við þekkta bakgrunnsvirkni.
Í ljósi þessara niðurstaðna er talið að þeim óróa sem einkennt hefur Öskju undanfarin ár sé lokið. Viðvörunarstig eldstöðvarinnar hefur því verið fært aftur á stig 0 sem táknar eðlilegt bakgrunnsástand.“