Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, segir Breta vera til staðar fyrir Úkraínumenn þegar þeir þurfa á því að halda og það breytist ekki. Rússar hótuðu afleiðingum vegna dróna, sem framleiddir voru í Bretlandi, og voru notaðir í loftárásum Úkraínu á Rússland.
Rússneska sendiráðið sagði í tilkynningu í morgun að Bretar hafi „vísvitandi stigmagnað Úkraínudeiluna“ og bætti því við að því dýpri sem þáttaka Breta í átökunum sé því hærra verð greiði þeir.
Burnham var spurður út í hótanir Rússa. Hann sagði Bretland veita Úkraínu stuðning til að verja sig.
„Það hefur verið afstaða Breta alla tíð í þessum átökum, meðal fyrrverandi forsætisráðherra og það er enn raunin hjá mér.“
Bretar standi ekki aðeins með Úkraínumönnum á friðartímum. „Við erum til staðar fyrir Úkraínumenn þegar þeir þurfa mest á því að halda og það mun ekki breytast.“
Rússneska sendiráðið sagði aðgerðir breskra stjórnvalda óhjákvæmilega hafa afleiðingar sem þau þurfi að svara. Sendiráðið tók ekki fram hvaða afleiðingar það væru.
Úkraínumenn hafa undanfarið sett aukinn kraft í árásir á Rússland, bæði með langdrægum eldflaugum og drónum. Þeir hafa einnig ráðist á birgðageymslur Wildberries, stærstu netverslunar Rússa, og koma þannig við kaunin á almennum borgurum í Rússlandi.