Það stendur mikið til á Borg í Grímsnesi því þar er verið að undirbúa sveitahátíðina Grímsævintýri sem verður laugardaginn 22. ágúst. Á hátíðinni verður meðal annars 100 ára afmæli tombólu Kvenfélags Grímsness fagnað þar sem 3.000 vinningar verða í boði og enginn núll.
Kvenfélagskonur í Kvenfélagi Grímsness eru á fullu þessa dagana að undirbúa Grímsævintýri á Borg í Grímses- og Grafningshreppi, sem haldin verður næsta laugardag, 22. ágúst.
Það verður sérstaklega hátíðlegt um að litast þennan dag því tombólan á Borg fagnar 100 ára afmæli, en þessi einstaka sveitahefð á rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1926.
„Gjöf sem gefur“
„Ég myndi segja að það væri ágætis sveifla og öll innkoma rennur óskert til góðra málefna, þannig að þetta er bara gjöf sem gefur”, segir Laufey Guðmundsdóttir er fjölmiðlafulltrúi Kvenfélags Grímsneshrepps.
Hvers konar vinninga verðið þið með?
„Það verður bara mjög fjölbreytt en það eru sem sagt enginn núll þannig að allir fá vinning og þú gefur til góðra málefna. Svo getur þetta verið hótelgisting eða út að borða og þetta getur bara verið kókómjólk eða prinspóló,” segir Laufey.
Laufey segir að 3.000 vinningar verði á tombólunni þar sem miðinn kostar 500 krónur.
„Það er alltaf gaman á Grímsævintýrum því það er svo gaman að sjá kynslóðirnar koma saman,” segir Laufey.
Um kvöldið verða ókeypis tónleikar í boði Grímsnes- og Grafningshrepps á Borg í tilefni af 100 ára afmæli tombólunnar.
„Þar sem Magnús Kjartans og Sigga Beinteins syngja og flott hljómsveit mun sjá um spilið. Þetta verður bara til að toppa stuðið, verið öll velkomin, ég hlakka til að sjá ykkur,” segir Laufey að lokum.