Fulltrúar meirihlutans í velferðarráði Reykjavíkurborgar hafa samþykkt tillögu um að hækka verð á máltíðum og heimsendum mat í félagsmiðstöðvum og þjónustuíbúðum frá og með 1. september. Með tillögunni er einnig lögð til einföldun gjaldskrár veitinga og fæðis fyrir árið 2026.
Þetta kemur fram í fundargerð velferðarráðs frá 13. ágúst. Tillagan verður lögð fyrir borgarráð á fimmtudag en þá ræðst hvort af breytingunum verði.
Verðhækkunin er á bilinu 43% til 72%
Lagt er til að almennt verð fyrir aðra en lífeyrisþega hækki úr 1.915 krónum í 2.387 krónur. Verð fyrir lífeyrisþega hækki úr 1.100 krónum og 1.190 krónum í 1.900 krónur.
Þá er jafnframt lagt til að gjald vegna aksturs heimsendra máltíða og fast fæði/matarmiðar verði lagt niður og innifalið í nýrri gjaldskrá. Eitt verð verði fyrir allar máltíðir óháð því hvar þeirra er neytt.
Tillagan var samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum Samfylkingarinnar og Vinstrisins. Fulltrúi Miðflokksins sat hjá við afgreiðslu málsins.
Markmiðið sé að koma á sjálfbærari rekstrargrundvelli
Í bókun fulltrúa meirihlutans segir meðal annars að meginmarkmið breytinganna sé að koma matarþjónustunni á sjálfbærari rekstrargrundvöll til framtíðar. Nauðsynlegt sé að bregðast við því að núverandi gjaldskrá hafi verið langt undir kostnaðarverði.
Í bókun fulltrúa Samfylkingarinnar segir hins vegar að tillagan feli í sér tugprósenta hækkun á matarverði til skjólstæðinga velferðarþjónustu í borginni. Í þeim hópi sé fólk með lágar tekjur.
„Vel má rökstyðja að tilefni hafi verið til nokkurrar hækkunar þar sem verðið hefur verið lægra í borginni en í flestum öðrum sveitarfélögum. En 43-72% hækkun á hádegismat í þjónustuíbúðum og félagsmiðstöðvum er gríðarleg breyting og langt umfram allt meðalhóf í samfélagi þar sem verðbólga mælist 5,3%,“ segir í bókuninni.
Tillagan verður tekin fyrir og atkvæði greidd á fundi borgarráðs fimmtudaginn 20. ágúst.