Svæðin sem valin voru í verkefnið eru við smábátahöfnina við Suðurströnd og Norðurströnd. Þessi svæði verða því ekki slegin reglulega í sumar heldur fær þannig náttúrulegur gróður að vaxa auk þess sem villtum tegundum með ýmsum blómgunarlitum er sáð.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seltjarnarnesbæ. Almenn grassvæði verði þó slegin á þriggja vikna fresti í sumar, samtals sex sinnum. Grassvæði við leik- og grunnskóla eru slegin þrisvar sinnum í sumar og var lúpína í bænum slegin einu sinni í byrjun júní.
Sveitarfélög víðs vegar um landið hafa tekið þátt í verkefninu, þar á meðal Mosfellsbær, Múlaþing og Reykjavík. Fulltrúi nýs meirihluta talaði hins vegar gegn hugmyndinni.