Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í dag verði breytileg átt á landinu eða stinningsgola og bjartviðri. Búast má við skýjahluu á Norðurlandi eystra fram að hádegi.
Á morgun kemur lægð að suðvesturhorni landsins með suðaustan kalda eða strekking. Þá tekur að rigna sunnan- og vestantil en verður hægari vindur og þurrt á norðaustan- og austanverðu landinu. Spáð er hita á bilinu níu til sautján stig, hlýjast í innsveitum á Norðurlandi.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Austan 8-15 m/s og rigning sunnan- og vestanlands. Hægari vindur annars staðar og skýjað með köflum. Hiti 8 til 16 stig, mildast norðantil.
Á þriðjudag:
Suðaustan og austan 5-13 m/s, en 10-18 við suðurströndina. Víða rigning, en úrkomuminna norðaustantil. Hiti 8 til 14 stig. Dregur úr vindi um kvöldið.
Á miðvikudag:
Suðlæg eða breytileg átt 5-13 og væta með köflum, en úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast um landið norðaustanvert.
Á fimmtudag:
Vestan- og suðvestanátt og rigning eða skúrir, en þurrt að kalla austast á landinu. Kólnar heldur.
Á föstudag:
Suðvestlæg átt og víða skúrir. Hiti 7 til 15 stig, mildast um landið austanvert.
Á laugardag:
Útlit fyrir suðlæga átt með vætu en bjartviðri norðaustantil. Hlýnandi.