Nokkur óvissa var um tíma hvort hátíðarhöld myndu halda áfram en Bandaríkjaforseti tók svo af allan vafa þegar hann sagði í færslu á X að dagskránni yrði fram haldið sama hvað.
NBC News segir að um 10.000 gestir hafi verið á hátíðarsvæðinu þegar hátíðarhöldum var frestað vegna veðurs og lögregla og gæslufólk fóru að vísa fólki af svæðinu.
Fleiri hundruð manns neituðu fyrst að yfirgefa svæðið þrátt fyrir skipun lögreglu og gæslumanna á svæðinu en að endingu tókst að rýma allt svæðið og gestir leituðu skjóls undan þrumuveðrinu í nærliggjandi byggingum.
Nokkrum tímum síðar var gestum aftur hleypt inn í garðinn og Trump hélt hátíðarræðuna.
Segir Bandaríkin þjóð sigurvegara
Ræða Bandaríkjaforseta var á sögulegum nótum. Hann rakti nokkur dæmi um hernaðarlega sigra Bandaríkjahers í gegnum tíðina. Nokkrir aldnir uppgjafahermenn komu upp á svið og hylltu sögulega fána sem voru til sýnis.
Trump sagði að Bandaríkin yrðu aldrei kommúnistaríki. Kommúnismi er ræfill og verður það alltaf.
Þá nýtti Trump tækifærið til að ræða frumvarp um breytingar á kosningalögum sem hann er að reyna að koma í gegn á Bandaríkjaþingi.
Forsetinn sagði Bandaríkin á góðri leið og sagði Bandaríkin þjóð sigurvegara. Hann sagði að það besta væri enn ókomið og nú væri dögun á nýrri gullaldartíð Ameríku.
Hátíðardagskránni lauk svo með mikilli flugeldasýningu.
Ýmsar ófyrirséðar uppákomur
Það var þó ekki bara í Washington sem veður setti mark sitt á hátíðarhöldin. Mikil hitabylgja hafði áhrif á viðburði víða um land og fjölda viðburða var aflýst, meðal annars í New Jersey, Pennsylvaníu, Maryland og allt vestur til Colarado.
Eldur kviknaði á Brooklyn-brúnni í New York í gærkvöld. Talið er að eldurinn hafi kviknað vegna flugeldasýningar sem var haldin í borginni til að fagna 250 ára afmæli Bandaríkjanna en flugeldum var skotið frá brúnni.
Ljósmyndari The New York Times sá eld loga á fjórum stöðum á brúnni. Ekki var greint frá slysi á fólki vegna eldsins og greiðlega gekk að slökkva eldinn að lokinni flugeldasýningu.