Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að sá handtekni hafi verið í annarlegu ástandi sökum áfengis- og fíkniefnaneyslu. Var viðkomandi vistaður í fangaklefa.
Lögreglan í Garðabæ hafði afskipti af öðrum sem var í mjög annarlegu ástandi vegna fíkniefnaneyslu. Var sá handtekinn og vistaður í fangelsi þar sem hann var ekki talinn vera fær um að vera úti meðal almennings.
Tilkynning barst lögreglu um stuld á rafhlaupahjóli og fannst meintur þjófur í Laugardalnum. Tekin var skýrsla af honum og að því loknu var viðkomandi sleppt. Einnig var tilkynnt um innbrot í bíl í Laugardalnum og var nokkrum verðmætum stolið.
Alls komu 87 mál á borð lögreglu frá klukkan fimm síðdegis í gær þar til klukkan fimm í morgun. Þrír voru vistaðir í fangaklefa lögreglunnar í morgunsárið.