Lögreglan í finnsku höfuðborginni skrifar í yfirlýsingu að lögreglunni hafi borist tilkynning upp úr klukkan 19 að staðartíma (kl. 16 að íslenskum tíma) um að trektlaga hlutur hefði fundist í sjónum suður af eyjunni Kustaanmiekka.
Yfirvöld rannsaki hvað hluturinn kunni að vera.
Lögreglan segir að farþegaskip ferðist reglulega um svæðið og hafa viðbragðsaðilar nú girt svæðið af í samvinnu við strandgæslu Finnlands. Þá segist lögreglan hafa óskað aðstoðar frá hernum vegna málsins.
Farþegi um borð í skipinu Viking Xprs, sem átti að leggja af stað frá Helsinki til Tallinn, sagði við miðilinn Ilta-Sanomat fyrr í kvöld að ekki hefði verið hægt að leggja af stað vegna aðgerða sem stæðu yfir í nágrenni við Helsinki.