Kristrún miðlæg í starfsaftökum

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Starfsaftökur í stjórnarráðinu gerast tíðari. Guðmundur Ingi missti ráðherradóm með hótunum um ,,stríð“ og skyndiheimsóknar Kristrúnar forsætis og Ingu Sælandá ráðherra í veikindaleyfi. Engar skýringar af hálfu valdakvenna stjórnarráðsins. Skyndileg starfslok Harðar Arnarsonar forstjóra Landsvirkjunar urðu fyrst heyrinkunn vegna fundar á skrifstofu forsætisráðherra.
Fjármálaráðherra en ekki forsætisráðherra fer með málefni Landsvirkjunar. Fundur Harðar og Kristrúnar var fyrir ,,kurteisissakir“ segir Þóra Arnórsdóttir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar. Við þekkjum Þóru af öðru en sannsögli.
Hörður var búinn að ákveða að hætta sem forstjóri er hann fór á fund forsætisráðherra. Líklegasta skýringin á fundi Harðar og Kristrúnar er tvíþætt. Hörður hefur viljað segja forsætisráðherra hver væri raunveruleg ástæða starfslokanna. Hörður hefði getað hringt í Kristrúnu eða sent henni tölvupóst. En hann kaus að mæta í stjórnarráðið til að undirstrika að starfslokin eru ekki persónuleg heldur pólitísk.
Ekki er vitað hvaða pólitísku ástæður liggja að baki. Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður Landsvirkjunar segir að ágreiningur hafi verið um ,,vinnubrögð“ og ,,form“ en samhugur hafi verið á milli forstjóra og stjórnar um stefnu fyrirtækisins. Trúi hver sem vill.
Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra vekur athygli á að stjórn Landsvirkjunar hafi verið skipt út í heilu lagi fyrir rétt rúmu ári. Á einu ári mótar stjórn ekki nýja stefnu fyrirtækis eins og Landsvirkjunar. Hörður hefur verið forstjóri í 17 ár.
Daði Már fjármálaráðherra skipar stjórn Landsvirkjunar. Undan hans rifjum er eitthvað runnið sem Hörður forstjóri gat ekki sætt sig við.
Þjóðin á Landsvirkjun, en hún fær ekkert að vita um ágreininginn. Ekki frekar en þjóðin fái að vita hvers vegna Guðmundur Ingi var hrakinn úr ráðherrastól.
Ykkur kemur þetta ekki við, segja ráðskonur stjórnarráðsins.