Tveir umsjónarmenn eins vinsælasta fréttaskýringarþáttar í heimi um sönn sakamál líkja rannsóknarlögreglumanni sem leysti morðmál, þar sem maður var myrtur eftir samantekin ráð eiginkonu sinnar, tengdamóður og mágs, við leikarann Ólaf Darra Ólafsson og vísa þeir þá sérstaklega til hlutverks hans, sem rannsóknarlögreglumaðurinn og lögreglustjórinn Andri, í íslensku spennuþáttunum Ófærð. Hrósa þeir umræddum rannsóknarlögreglumanni í hástert og segja hann líkjast bæði Ólafi Darra í útliti en ekki síður svipi hans nálgun í starfi til hins skáldaða Andra.
Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð