Langtímaatvinnuleysi er að aukast, segir forseti ASÍ sem telur stýrivexti Seðlabankans koma niður á samfélaginu öllu. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar segir mikilvægt að stefna áfram að hallalausum ríkisrekstri og styðja við peningastefnuna.
181 var sagt upp í hópuppsögnum í síðasta mánuði.
Arna Lára Jónsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, voru gestir í Vikulokunum fyrir hádegi þar sem kjaramál og atvinnuleysi voru til umræðu.
Skjóti skökku við að stytta bótatímabilið í dag
Finnbjörn segir mælingar ASÍ gefa til kynna að langtímaatvinnuleysi sé að aukast. Ríflega 1.700 manns hafi verið atvinnulausir í ár eða lengur. Um 1.500 manns hafi verið það á síðasta ári.
Atvinnuleysisbótatímabilið var áður 30 mánuðir en var stytt niður í 24 mánuði í sumar.
„Þannig að við komum til með að sjá fólk detta út af atvinnuleysisbótum og þá er ekkert annað heldur en félagskerfi sveitarfélaganna sem bíður þeirra,“ segir Finnbjörn.
Seðlabanki Íslands hafi kyrkingartak á atvinnulífinu með háum stýrivöxtum.
„Það að við séum með rúmlega 3% raunvexti á milli verðbólgu og stýrivaxta er náttúrlega bara galið. Þetta hefur áhrif alls staðar vegna þess að ávöxtunarkrafan hækkar út af svona háum stýrivöxtum. Allt samfélagið þarf að standa undir þessu, bæði verslun og fyrirtækin og aðrir sem eru með lán.“
Hallalaus ríkisrekstur mikilvægur
Arna Lára segir mikilvægt að stefna áfram að hallalausum ríkisrekstri og styðja við peningastefnu Seðlabanka Íslands. Greiningar gefi til kynna að verðbólga sé á niðurleið.
„Það er auðvitað verið að kæla hagkerfið. Það má bara ekki kæla það of mikið en það gengur auðvitað ekki að keyra þetta þjóðfélag áfram á fólksfjölgun, með því mikla álagi sem hefur verið hér á innviði. Það þarf aðeins að kæla og ná tökum á efnahagslífinu og ríkisútgjöldunum ekki síst,“ segir Arna Lára.