Shoko Kawata vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar hún tilkynnti að hún hygðist taka sér fæðingarorlof, fyrst allra bæjarstjóra í Japan. Fyrir ákvörðun sína hefur tímaritið Time skipað henni á lista yfir 100 áhrifamestu, rísandi stjörnur heims.
Kawata er þrjátíu og sex ára bæjarstjóri í bænum Yawata sem er rétt sunnan við borgina Kyoto í Japan.
Þegar Kawata var kjörin í embættið árið tvö þúsund tuttugu og þrjú, þá þrjátíu og þriggja ára gömul, var hún jafnframt yngsta konan til að gegna starfi bæjarstjóra í landinu.
Fréttamiðillinn Japan Times greinir frá því að fyrir ákvörðun sína hafi Kawata fengið bæði hól og last í Japan þar sem hlutfall kvenna í stjórnmálum er afar lágt og kynbundin mismunun á vinnustað er þeim oft fjötur um fót.
Varpar ljósi á vandamál sem valda fólksfækkun
Í umsögn Time um val þeirra á Kawata segir jafnframt að gagnrýnin sem beindist að henni hafi varpað ljósi á þau vandamál sem valda stöðugri fólksfækkun í landinu.
Miklar kröfur atvinnurekenda og hærri framfærslukostnaður hefur gert fólki erfiðara um vik við að stofna fjölskyldu. Í stjórnartíð Kawata hefur fjölskylduvænum lausnum hins vegar fjölgað í Yawata.
Meðal aðgerða bæjarstjórnar hennar er að lækka kostnað hádegisverðar í skólum, að útvega ókeypis bleyjur í leikskólum og að auka við umönnun í kjölfar fæðingar.
„Kawata hefur sýnt hvernig Japan getur orðið vænlegra fyrir fjölskyldulíf,“ segir enn fremur í umsögn Time.
Fimmtánda september eignaðist Kawata dóttur. Fæðingarorlof hennar hófst í júlí og stendur yfir til áttunda nóvember. Í fjarverunni sinnir hún þó raunar ýmsum starfsskyldum sínum í fjarvinnu.