Gul viðvörun er í gildi vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum. Á vef Veðurstofu Íslands segir að síðustu dagar hafi verið mjög úrkomusamir víða um land.
„Á norðanverðum Vestfjörðum hafa fallið bæði grjóthrun og skriður, mest áberandi var stór skriða sem féll á Hnífsdalsveg í gær, 2. október. Í dag, laugardag, er von á lægð yfir landið sem með fylgir úrkoma,“ segir þar.
„Heildarúrkoma sem fylgir lægðinni er ekki talin veruleg með tilliti til skriðuhættu, en þar sem jarðvegur er þegar orðinn vatnsmettaður getur lítil viðbótarúrkoma nægt til að koma af stað hreyfingum í hlíðum og aukið líkur á skriðuföllum.“
Á vef Veðurstofunnar segir að athyglisverð virkni hafi verið í Gleiðarhjalla síðustu daga. Svæðið geti verið viðkvæmt í kjölfar langvarandi úrkomu.
„Skriða féll í Eyrarhlíð í gær, föstudaginn 2. október, sem var 20 metra breið á veginum. Vegna áframhaldandi úrkomu í dag eru líkur á frekari virkni í Gleiðarhjalla og Eyrarhlíð. Búast má við skyndilegum vegalokunum, sérstaklega á Hnífsdalsvegi, í þessum aðstæðum.“
Skriðuvakt Veðurstofunnar fylgist náið með aðstæðum. Veðurstofan hvetur almenning til að tilkynna skriðuvakt hennar um skriður og grjóthrun.
„Hægt er að senda tilkynningu á netfangið skriduvakt@vedur.is eða nota rafrænt eyðublað fyrir tilkynningar um ofanflóð. Gott er að tilgreina nákvæma staðsetningu og hvenær skriðan eða grjóthrunið varð. Ef það er ekki vitað nægir að segja hvenær þess varð vart. Látið myndir fylgja ef kostur er.“