Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi fyrst frá. Tvær þyrlur hafa verið kallaðar út vegna slyssins. Lögregla fékk tilkynningu um alvarlegt umferðarslys um klukkan hálf tólf í dag. Skömmu síðar var búið að boða björgunarsveitir og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar um klukkan 11:45.
Vegurinn um Jökuldal er lokaður meðan vinna á vettvangi stendur yfir, að sögn lögreglu. Hún hyggst ekki gefa út frekari upplýsingar á þessu stigi.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.
Fréttatilkynning lögreglu í heild sinni
„Um klukkan hálf tólf í dag barst lögreglu tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Fjórir bílar sagðir hafa lent í árekstri og að átta hafi verið um borð. Boð báru með sér að einhverjir þeirra væru alvarlega slasaðir. Viðbragðsaðilar voru þegar boðaðir á vettvang; sjúkralið, björgunarsveitir, þyrla Landhelgisgæslu og Rauði krossinn auk lögreglu. Hópslysaáætlun virkjuð.
Vegurinn um Jökuldal er lokaður meðan vinna á vettvangi stendur yfir. Ekki er á þessu stigi hægt að gefa frekari upplýsingar.“
Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.