Mikhail Kasyanov, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, segir Vladimír Pútín Rússlandsforseta ekki reiðubúinn til að semja um stríðslok í Úkraínu. Hann þori ekki að viðurkenna að hann hafi gert mistök.
Kasyanov var forsætisráðherra Rússlands frá 2000 til 2004. Í viðtali við AFP segir hann Rússlandsforseta hafa málað sig út í horn.
Pútín hafi gert þau hrapallegu mistök að trúa öryggisráði sínu um að Úkraína væri veikburða fyrir innrásina árið 2022. Hann segist því ekki viss um að stríðið taki enda á næsta ári, þrátt fyrir stígandi efnahagsvanda og óróleika meðal rússnesku þjóðarinnar.
Pútín sé enn sannfærður um að hann geti haldið út gegn Úkraínumönnum og megi ekki sýna veikleika með því að gefast upp.
Rússar hvöttu diplómata og útlendinga til að yfirgefa Kyiv í dag og boðuðu miklar loftárásir á borgina, aðeins nokkrum klukkustundum eftir árás þeirra á brú í borginni þar sem tveir særðust.
Vesturlöndin þurfi að þétta raðirnar og ekki óttast Pútín
Kasyanov segir Pútín eflaust gleðjast vegna ágreinings á milli Bandaríkjanna og Evrópu um hvernig skuli takast á við innrásarstríð Rússa í Úkraínu, sem og hækkun olíuverðs vegna átaka Bandaríkjanna við Íran.
Stærstu mistök Vesturlanda og Evrópubúa séu að óttast Pútín of mikið. Hann sé ekki jafn sterkur og hann virðist og óttist kjarnorkuhnappinn meira en margir Evrópubúar.
Kasyanov segir Pútín ekki siðblindan líkt og margir telji heldur útreiknaðan bölsýnismann. Fjölþáttaárásir hans á bandamenn Úkraínu séu beint upp úr verkfærakistu KGB, leyniþjónustu Sovétríkjanna, sem Pútín var hluti af á sínum tíma.
Þeim sé ætlað að ögra, en Pútín hyggi ekki á stríð við Evrópu að hans mati. Hann vilji fyrst og fremst þvinga fram virðingu þeirra og viðurkenningu.
Kasyanov segir að gera megi ráð fyrir erfiðum vetri fram undan fyrir Úkraínumenn. Hann hvetur Vesturlönd til að þétta raðirnar og gefa Úkraínumönnum loftvarnaflaugar til að verjast loftárásum Rússa.
Allir vilji að stríðinu ljúki
Kasyanov kveðst enn í samskiptum við fólk úr rússnesku elítunni og segir mikinn ótta ríkja innan hennar. Allir vilji að stríðinu ljúki. Það sé aftur á móti allur gangur á því hvort fólk vilji að það endi með sigri Rússa, tapi Pútíns, eða hvort það vilji einfaldlega að því ljúki, óháð niðurstöðunni.
Það er þvert á túlkun Rússlandsforseta, sem segir sögulegan sigur sinn í nýyfirstöðnum kosningum benda til ánægju þjóðarinnar.
Kasyanov hefur verið í útlegð frá Rússlandi síðan 2022, skömmu eftir innrásina, og hefur verið gagnrýninn á Kreml.