Ökukennari í Rangárvallasýslu furðar sig á þeirri ákvörðun Samgöngustofu og Frumherja að hætta að leyfa þeim sem eru að læra á bíl að taka ökupróf, verkleg og bókleg á Hvolsvelli eins og gert hefur verið í þrjátíu ár.
Nú þarf annað hvort að fara á Selfoss eða Höfn til að taka prófin.
Verklegu og bóklegu ökuprófin hafa farið fram til fjölda ára á Hvolsvelli fyrir þá ökunemendur sem búa í Rangárvallasýslu eða Vestur-Skaftafellssýslu en nú hefur það verið aflagt. Prófað hefur verið á Hvolsvelli af starfsfólki Frumherja fyrir hönd Samgöngustofu.
Guðni Ragnarsson, ökukennari, sem býr á Guðnastöðum í Landeyjum hefur vakið athygli á málinu með bréfi til sveitarstjórna. Hann er mjög óánægður með þessa breytingu.
„Þetta minnkar náttúrlega þjónustuna við svæðið töluvert og verður miklu dýrara fyrir nemendur að fara alltaf á Selfoss í bókleg og verkleg próf, ég tala nú ekki um frá Vík og þar fyrir austan. Sumir nemendur þurfa að fara tvisvar til þrisvar í próf ef þeir ná kannski ekki í fyrsta þannig að þetta er orðinn töluverður kostnaður,” segir Guðni.
Guðni segir að þjónusta Frumherja á Hvolsvelli hafi verið til fyrirmyndar og skilur ekki þessa ákvörðun. En veit hann af hverju hún var tekin?
„Ætli þetta sé ekki bara einhver hagræðingarkrafa hjá þeim. Þetta hætti bara í byrjun síðasta mánaðar mjög óvænt. Fólk var bara að fara í próf og var bara tilkynnt að það yrði ekki tekið meira,” segir Guðni og bætir við.
„Maður skilur ekki alveg ástæðuna, þeir spara eitthvað smá en þá kemur það náttúrlega á móti að það eru allir aðrir að eyða miklu meiri kostnaði. Við þurfum að fara í prófin á Selfoss með nemendur með aukinni olíueyðslu og það er aukinn tími og kostnaður við þetta allt saman”.
Og Guðni heldur áfram.
„Mér finnst bara vont þegar það er verið að minnka þjónustuna á landsbyggðinni og alltaf verið að draga hana nær höfuðborgarsvæðinu, því þetta er hlutur sem við þurfum að passa. Hvolsvöllur er náttúrlega ört vaxandi sveitarfélag,” segir Guðni.